Síða 1 af 1
Að flytja inn benz bíl frá þýskalandi
Innsent: 25 Mar 2013, 02:16
frá m-benz
Hef verið að pæla hvort það sé vit að flytja inn M Benz bíl inn frá þýskalandi
Er einhver hér sem hefur reynslu af því?
Tollarnir eru nokkuð háir það er það eina sem ég veit.
Og spurningin hreinlega hvort það borgar sig?
Re: Að flytja inn benz bíl frá þýskalandi
Innsent: 25 Mar 2013, 10:24
frá BaraBenz
Ég tel að þú getir yfirleitt bætt við 90-100% ofan á verðið.
Það er svolítið dýrt í dag.
Re: Að flytja inn benz bíl frá þýskalandi
Innsent: 25 Mar 2013, 12:41
frá Benzari
Ef það er hugmyndin að finna bíl sem er ekki í boði hérna, þá geturðu kannað málið með að senda þessum póst.
smarihamburg@t-online.de
Re: Að flytja inn benz bíl frá þýskalandi
Innsent: 25 Mar 2013, 15:33
frá GUMMCO
Það sem skiptir mestu máli í innflutnig er co innihald viðlomandi bifreiðar og svo eru gjaldeyrishöft sem gera það illmögulegt að senda á erlendan reikn greiðslu
Re: Að flytja inn benz bíl frá þýskalandi
Innsent: 27 Mar 2013, 17:17
frá Hlynzi
Það er auðvitað vit í því, allir bílar eru nú fluttir inn einhversstaðar frá. Mikið af benznum hafa komið frá USA.
Þarft að finna út tollprósentuna, flutnings og umsýslugjöld. Yfirleitt tvöfaldast hann í verði m.v. verðið úti (gróflega)
Re: Að flytja inn benz bíl frá þýskalandi
Innsent: 01 Apr 2013, 09:44
frá sigurður
Svo er það hin aðferðin, sem er að fara sjálfur til Þýskalands og kaupa bílinn og gera ferðina að smá fríi í leiðini, koma heim með Norræna og lækka þar með flutningskostnaðinn verulega ( hann hækkar innflutningsgjöldin ). Hef gert þetta nokkrum sinnum með ágætum árangri, td. M B 500 sec sem Buss á núna. Mjög einfalt að gera svona viðskipti við Þjóðverja, og gaman að ferðast um í leiðinni, Mercedes safnið í Stuttgart td.
Sigurður 8965986