Síða 1 af 5

Formula 1 2013 hvernig gengur Mercedes þetta árið ?

Innsent: 30 Jan 2013, 09:42
frá gmg
Sælir félagar, hvernig líst mönnum á tímabilið, Lewis Hamilton kominn við hlið Nico Rosberg, fá þeir góðan bíl, verður þetta sigur-ár Mercedes ?

Ég vona það, bíð spenntur eftir fyrstu keppni þann 17. mars :mercedes:

Re: Formula 1 2013 hvernig gengur Mercedes þetta árið ?

Innsent: 30 Jan 2013, 10:13
frá Benni
Það er synd að Mercedes hefur ekkert gengið frá því að þeir keyptu Brawn liðið :shock:
Brawn gjörsamlega rústaði keppninni þetta eina ár sem liðið var til. Skítt að Schumacher kom inn á versta tíma, hefði verði gaman að sjá hann vinna a.m.k. 1 mót áður en hann hætti endanlega :?

Líst annars vel á Hamilton, vona bara að þetta verði gæfuspor fyrir Mercedes :tumbsup2:

Re: Formula 1 2013 hvernig gengur Mercedes þetta árið ?

Innsent: 31 Jan 2013, 20:11
frá Alpina
Ég er ekki fylgjandi Hamilton,, en hann er mega driver,, það er staðreynd

Re: Formula 1 2013 hvernig gengur Mercedes þetta árið ?

Innsent: 31 Jan 2013, 20:19
frá JBV
Er sammála þér Sveinbjörn. Hef reyndar alltaf verið Schumacher aðdáandi - og á erfitt með að finna nýjan kappakstursmann til að halda með. Það er snautlegt að sjá svona endi hjá margföldum meistara. Hann hefði betur gert að taka ekki keppnisgallann fram aftur eftir farsælan feril.

Hvað um það, áfram Mercedes ! :clapping:

Re: Formula 1 2013 hvernig gengur Mercedes þetta árið ?

Innsent: 31 Jan 2013, 20:44
frá Alpina
JBV skrifaði:Er sammála þér Sveinbjörn. Hef reyndar alltaf verið Schumacher aðdáandi - og á erfitt með að finna nýjan kappakstursmann til að halda með. Það er snautlegt að sjá svona endi hjá margföldum meistara. Hann hefði betur gert að taka ekki keppnisgallann fram aftur eftir farsælan feril.

Hvað um það, áfram Mercedes ! :clapping:
Já,, en ég átti erfitt að horfast í augu með J.V. uppákomuna,, og svo þegar hann stoppaði viljandi fyrir framan Alonso.. þá gaf ég algert frat í hann,, og er hann án vafa besti F1 ökuþór sem uppi hefur verið.. fáránlega flinkur og snjall sem F1 driver.. enda sannar allt statestic slíkt

en samt auli og skítæll ,,,,, menn með svona getu eiga ekki að þurfa að gera slíkt eins og hann gerði :tumbsdown2: :tumbsdown2: :tumbsdown2:

Ég styð KIMI RAIKKONEN

Re: Formula 1 2013 hvernig gengur Mercedes þetta árið ?

Innsent: 04 Feb 2013, 21:12
frá gmg
Jæja þá eru liðin að frumsýna bílana fyrir keppnistímabilið !

http://www.mercedes-amg-f1.com/news_2008.html" onclick="window.open(this.href);return false;



http://www.youtube.com/watch?v=iSfVp161XVs" onclick="window.open(this.href);return false;

Re: Formula 1 2013 hvernig gengur Mercedes þetta árið ?

Innsent: 04 Feb 2013, 21:23
frá gmg


http://www.youtube.com/watch?v=FX8wFMg91rQ" onclick="window.open(this.href);return false;

Re: Formula 1 2013 hvernig gengur Mercedes þetta árið ?

Innsent: 04 Feb 2013, 21:37
frá Jinx
:D Hvernig er það, úr því að èg á orðið Benz verð ég þá að halda með Mercedes?
Fjárinn hafi það verð ég þá að selja hann strax???

Re: Formula 1 2013 hvernig gengur Mercedes þetta árið ?

Innsent: 04 Feb 2013, 22:45
frá JBV
Jinx skrifaði::D Hvernig er það, úr því að èg á orðið Benz verð ég þá að halda með Mercedes?
Fjárinn hafi það verð ég þá að selja hann strax???
Þú sleppur, þar sem þú ert ekki orðinn gildur félagi í MBKÍ. :D En um leið og þú gengur í klúbbinn þá stendur í smáaletrinu að þú verðir að halda með Mercedes í F1....já og bara öllu! :mrgreen:

Re: Formula 1 2013 hvernig gengur Mercedes þetta árið ?

Innsent: 02 Mar 2013, 14:08
frá gmg
2 vikur í fyrstu kepnnina, Mercedes að gera góða hluti á æfingum í Barcelona :

http://www.mbl.is/sport/formula/2013/02 ... bleytunni/" onclick="window.open(this.href);return false;