Síða 1 af 1

Bilanatíðni í 99-00 árg. af ML benzum

Innsent: 02 Okt 2012, 21:25
frá margeirorn
Sælir,

Hef verið að velta því fyrir mér hvort eitthvað vit sé í því að kaupa eitt stk. ML benz, ca 1998-2000árgerðir. T.d. ML 320

Hvernig eru þessir bílar að reynast? Er þetta síbilandi? Eyða þessir bílar miklu? Er mikill munur á bílunum út frá vélarstærðunum?

kv.
Margeir

Re: Bilanatíðni í 99-00 árg. af ML benzum

Innsent: 02 Okt 2012, 21:56
frá Gizmo
Fyrstu árin, 98,99 og 00 eru án efa verstu ár ML seríunnar, þeir biluðu það mikið að um 70 bílum var flogið frá USA í krufningu í höfuðstöðvunum eftir að kaupendur í USA trylltust vegna gæðamála, úrkoman var 2002 bíllinn sem er stórbættur bíll frá þeim eldri.

Myndi reyna að eignast 2002 eða yngri, eða kaupa eldri bílinn ódýrt og gera ráð fyrir að eitt og annað komi upp.

Re: Bilanatíðni í 99-00 árg. af ML benzum

Innsent: 02 Okt 2012, 23:50
frá Benni
Gizmo skrifaði:Fyrstu árin, 98,99 og 00 eru án efa verstu ár ML seríunnar, þeir biluðu það mikið að um 70 bílum var flogið frá USA í krufningu í höfuðstöðvunum eftir að kaupendur í USA trylltust vegna gæðamála, úrkoman var 2002 bíllinn sem er stórbættur bíll frá þeim eldri.

Myndi reyna að eignast 2002 eða yngri, eða kaupa eldri bílinn ódýrt og gera ráð fyrir að eitt og annað komi upp.
A.m.k. fá upplýsingar um hvort ekki sé búið að skipta um alla "helstu slitfleti...".
Þó veit ég dæmi um bíla sem virðast hafa sloppið að mestu leyti við eitthvað vesen (þá sem ML320) sem og einhverjar meiningar voru um að þeir bílar, sem framleiddir voru hjá Magna Steyr í Graz í Austurríki (á milli 1999 og 2002) hafi verið betri en þessir amerísku.

Re: Bilanatíðni í 99-00 árg. af ML benzum

Innsent: 03 Okt 2012, 10:20
frá íbbi
hárétt með að 2002 og uppúr séu málið frekar en 98-00

Re: Bilanatíðni í 99-00 árg. af ML benzum

Innsent: 03 Okt 2012, 17:45
frá margeirorn
Takk fyrir þetta... afar gott að vita.

Var með þennan hér í huga:
Mercedes Benz ML320

Var að tala við sölumanninn sem sagði að eitthvað tikk væri í vélinni. Fannst það ekki mjög traustvekjandi.

kv.
Margeir

Re: Bilanatíðni í 99-00 árg. af ML benzum

Innsent: 06 Okt 2012, 13:19
frá íbbi
tja..

hann má líka vera slæmur þessi, ég seldi svona gamlan ml320 á helmingi meira fyrir mjög stuttu.