Síða 1 af 2
Dauðaleit að ákveðnum MB
Innsent: 13 Jún 2012, 22:08
frá maxel
Ég er farið að langa illa mikið í eitthvað tignarlegt verkefni fyrir veturinn og ég er að gera dauðaleit að gamla bílnum hans Ívars hér á spjallinu (400E TV-567, var frekar lúinn síðast þegar ég vissi).
Ég er búin að hringja í núverandi eiganda en hann á ekki bílinn lengur og finnur ekki upplýsingar um hann. Ef einhver á spjallinu veit um hann má hann senda mér upplýsingar og ef eigandinn er hér skráður kannski má henda á mig línu í einkaskilaboðum

Re: Dauðaleit að ákveðnum MB
Innsent: 14 Jún 2012, 00:04
frá Hlynzi
Já spurning hvar hann er niðurkominn, sá hann á mynd og það ansi sjúskaðann.
Sendu línu á us.is (umferðarstofu) og fáðu upplýsingar um núverandi eiganda og símanúmer.
Re: Dauðaleit að ákveðnum MB
Innsent: 14 Jún 2012, 02:03
frá maxel
Ég er búin að hringja í "núverandi eiganda"
Hann er búin að selja bílinn og veit ekkert hver keypti hann....
Engin eigandaskipti kominn í gegn
Re: Dauðaleit að ákveðnum MB
Innsent: 14 Jún 2012, 02:06
frá Geir-H
Heitir hann Davíð sá sem þú talaðir við? Held að ég hafi séð þennan bíl nýmálaðann upp á höfða áðan
Re: Dauðaleit að ákveðnum MB
Innsent: 14 Jún 2012, 13:19
frá maxel
Nei það hét hann ekki, veistu hvar hann var?
Re: Dauðaleit að ákveðnum MB
Innsent: 14 Jún 2012, 14:33
frá maxel
Ertu kannski að ruglast á þessum?
http://www.stjarna.is/spjall/viewtopic. ... 62#p165562" onclick="window.open(this.href);return false;
Re: Dauðaleit að ákveðnum MB
Innsent: 19 Jún 2012, 12:11
frá Aequitas
Ég mætti honum uppi á höfða við húsgagnahöllina á laugardaginn, leit mjög vel út.
Re: Dauðaleit að ákveðnum MB
Innsent: 20 Jún 2012, 16:46
frá maxel
Búið að laga skráninguna og ég heyrði í eigandanum.
Hann var bara að koma á götuna, allur nýskveraður og sprautaður í dekkri lit.
Skemmtilegt að þessi bíll sé kominn í góðar hendur.

Re: Dauðaleit að ákveðnum MB
Innsent: 23 Jún 2012, 12:06
frá Hlynzi
Sá hann í gær.
Bíllinn var á kjánalega breiðum felgum, sem greinilega hefur þurft að stilla camberinn í neikvætt til að halla þeim undir brettin !
Einnig mega menn sleppa því að mála krómlista, það er ekki töff.
Re: Dauðaleit að ákveðnum MB
Innsent: 24 Jún 2012, 16:43
frá maxel
Ertu að tala um listana á hliðarplöstunum?
Minn var með það málað, mjög flott