Síða 1 af 1

þegar stórt er spurt er oftast lítið um svör! hjálp!

Innsent: 05 Apr 2012, 20:28
frá Benzter
jæja góða kvöldið félagar

núna langar mig að spyrjast fyrir um gamlan benz sem að afi minn og amma áttu á sínum tíma
þau keiptu hann 1966 eða 67 af manni sem hét geir hallgrímsson borgarstjóri rvk á þeim tíma
þau seldu hann 1970
afi minn var skráður eigandi
Finnur Freymundur Óskarsson

þessi bíll var með skráningarnúmerinu Ö128 eða Ö158 frá því þau keiptu hann og þangað til þau seldu hann þá fóru önnur númer á hann

þau segja mér að bíllinn hafi verið í svipuðu boddýi eða alveg eins og bíllinn á myndinni hér að neðan nema bara ljósgrár á litin
[img]http://4.bp.blogspot.com/_VnpZkc3GzxI/S ... _sf011.JPG[/img]

mér langar að fá upplisingar um hvar þessi bíll er niðurkominn í dag og hvernig ástandið á honum er og hvort hann sé falur

jæja benz áhugamenn nær og fjær hellið nú yfir mig fróðleik ykkar sem þið getið fundið um þennan bíl
kv.Alexander

Re: þegar stórt er spurt er oftast lítið um svör! hjálp!

Innsent: 05 Apr 2012, 22:42
frá Benzari
A661 í eigu Árna í Lakkskemmunni ?

Re: þegar stórt er spurt er oftast lítið um svör! hjálp!

Innsent: 05 Apr 2012, 23:26
frá Benzter
Benzari skrifaði:A661 í eigu Árna í Lakkskemmunni ?
gætiru flétt upp eigandaferlinum á þessum bíl fyrir mig?

Re: þegar stórt er spurt er oftast lítið um svör! hjálp!

Innsent: 06 Apr 2012, 00:20
frá Gizmo
Hvað er málið með langan lista af bílum sem menn hafa selt í undirskrift ??

Re: þegar stórt er spurt er oftast lítið um svör! hjálp!

Innsent: 06 Apr 2012, 12:05
frá Benzter
Gizmo skrifaði:Hvað er málið með langan lista af bílum sem menn hafa selt í undirskrift ??
það vantar nú 2 bíla í viðbót inná þennan lista

viltu frekar að ég setji ljóð eftir jónas hallgrímsson í undirskriftina mína?

En ontopic!

síðast vita þau um eiganda á bílnum að nafni ragnar guðmundsson búsettur á siglufirði um 1975 - 1980

Re: þegar stórt er spurt er oftast lítið um svör! hjálp!

Innsent: 07 Apr 2012, 09:16
frá E-cdi
Benzter skrifaði:
Gizmo skrifaði:Hvað er málið með langan lista af bílum sem menn hafa selt í undirskrift ??
það vantar nú 2 bíla í viðbót inná þennan lista

viltu frekar að ég setji ljóð eftir jónas hallgrímsson í undirskriftina mína?
já hann bað persónulega um það alexander :lol:

nei held að maðurinn hafi verið að gefa í skyn að þeir bílar sem menn eiga að hverju sinni sé allveg nóg í undirskrift ásamt nafni og kannski simanumeri. og þar er ég sammála honum :)
en on topic

Re: þegar stórt er spurt er oftast lítið um svör! hjálp!

Innsent: 07 Apr 2012, 18:41
frá JBV
Ekki vitlaus hugmynd að setja ljóð eftir Jónas Hallgrímz í undirskriftina. Eins og t.d. upphafserindið í "Ferðalokum";

Ástarstjörnu :mercedes:
yfir Hraundranga
skýla næturský;
hló hún á himni,
hryggur þráir
sveinn í djúpum dali.

:mrgreen: :mrgreen: