gislib skrifaði:Góðan daginn ég hef mikið vera að spá í að kaupa mér AMG bíl og þá c-class
Hvað eru þessir bílar að eyða á 100 km/h
MERCEDES-BENZ C 55 AMG 2004-07
MERCEDES-BENZ C 32 AMG 2001-04
fyrir fram þakkir

Ég á C55 og meðaltalið í tölvunni er 14.x 1/100 (núllstillt fyrir ca 3 árum að mig minnir, svo það ætti að gefa nokkuð raunhæfa mynd). Fékk hann eins árs í hendurnar og þá var meðaltalið 12,7 enda var hann vinnubíll hjá fyrri eiganda og mikið í langkeyrslum.
Hann er ca. 10 til 11 l/100 á langkeyrslu og alveg upp í ca. 18 á innsoginu í frosti.
Allt fer þetta reyndar líka eftir akstursmáta
Ég hef grun um að C32 sé næmari fyrir akstursmáta en C55, enda bílar með turbo/compressor oft skaplegir í sparakstri en eyða svo óheyrilega miklu ef þeim er gefið inn...
Passaðu þig bara að skoða söguna á þessum bílum áður en þú kaupir, það eru þó nokkuð margir af þeim hér á landi sem eru tjónabílar og/eða flóðhestar sem hafa gengið milli mis margra og mis vafasamra braskara...