Síða 1 af 1
Ódýr smurolía ?
Innsent: 27 Sep 2011, 02:01
frá kHRYZTAL
Hvar er ódýrt að kaupa 0w-40 FULLY Synthetic á (Fer á M112 E32 3.2L vél)
Kanski nóg 5w-30/40 ?
Í eiganda handbókinni stendur:
0w-40 Fully Synthetic (For example Mobil One)
MB Standard: 229.3 & 229.5
Ég hef bara farið eftir því !
Mobil One hefur hækkað 300% síðann ég byrjaði að kaupa það og það fer 8-8.5L á hann.
Hverju mælið þið með og hvar eruð þið að kaupa dropann ?
-Takk
Re: Ódýr smurolía ?
Innsent: 27 Sep 2011, 06:35
frá BaraBenz
Mér var ráðlagt að nota Mobil 3000 fyrir 112 mótorinn hér á Íslandi
Mun ódýrari en Mobil 1
Re: Ódýr smurolía ?
Innsent: 27 Sep 2011, 12:38
frá kHRYZTAL
BaraBenz skrifaði:Mér var ráðlagt að nota Mobil 3000 fyrir 112 mótorinn hér á Íslandi
Mun ódýrari en Mobil 1
Sæll.
Þessi ?: [img]
http://www.uleiurioriginale.ro/images/m ... _5w_40.jpg[/img]
Fæst ekki bara Móbíl í N1 ? (Hef alltaf bara verzlað þar)
Re: Ódýr smurolía ?
Innsent: 27 Sep 2011, 15:26
frá BaraBenz
Jú það er þessi. Ég hef bara séð hana á N1.
Á eldri Benz vélar var mér ráðlagt að nota Mobil 2000, t.d 103, en þær nýrri eins og 112, nota Mobil 3000.
Re: Ódýr smurolía ?
Innsent: 28 Sep 2011, 00:59
frá Mercedes-Benz
Við hjá Bíla-Doktornum eigum einnig mjög vandaðar olíur sem við sérinnflytjum fyrir Mercedes-Benz (og aðra bíla líka), en þær eru á mjög góðu verði.
Við eigum nokkrar mismunandi olíur fyrir Mercedes-Benz sem uppfylla staðlana API SF/CC, 229.1, 229.3. 229.5 og 229.51 eða semsagt á alla MB frá árgerð 1950, eða jafnvel eldra, og allt til dagsins í dag.
Re: Ódýr smurolía ?
Innsent: 28 Sep 2011, 08:41
frá Gizmo
Strákar verslum við smáfuglana, stóru olíufélögin eru búin að hækka verð á smurolíum, fröstlög og öðru uppúr öllu valdi eins og sést einmitt vel á Mobil1 sem er orðin fáRÁNlega verðlögð og við eigum ekki að verðlauna þá frammistöðu. Doktorinn, Kemi, Motul á Akureyri og einnig Poulsen í skeifunni eru góðir og ódýrari kostir.