Síða 1 af 1

Breyta W126?

Innsent: 18 Maí 2011, 21:35
frá olafur_
Sælir

Ég var nú með W126 (280SE) hérna á sölu fyrir stuttu en ákvað að hætta við sölu.
Ástæðan fyrir því er að ég ákvað að gera hann fallegan sjálfur og sprauta hann.
Var að spá í hvort ég ætti að breyta honum eitthvað meira útlitslega séð og hvernig ykkur lýst best á að breyta honum og hvernig lit ég ætti að sprauta hann í?

Óli

Re: Breyta W126?

Innsent: 18 Maí 2011, 22:37
frá Hlynzi
Myndi klárlega taka svartasta svart (benz litur 040 held ég) , dökk vínrauður væri þó eitthvað sem ég væri til í að sjá á honum og skoða.

En þeir þurfa nú ekki miklar breytingar til þess að verða mjög glæsilegir, orginal líta þeir gríðarlega virðulega og vel út.

[img]http://static.autoblog.nl/images/wp2007 ... -sel_2.jpg[/img]
Carlsson felgur .... TÖFF

[img]http://i213.photobucket.com/albums/cc14 ... -273-1.jpg[/img]

[img]http://www.benzworld.org/forums/attachm ... rk6gp2.jpg[/img]

Eina sem mér finnst vanta á þá orginal er örlítið lægri framsvunta eins og er á þessum Panzer bíl, hann er hrikalega svalur.

Re: Breyta W126?

Innsent: 19 Maí 2011, 09:19
frá Björgvin B
Þessir bílar eru fallegastir orginal það er mín skoðun. :mercedes:

Re: Breyta W126?

Innsent: 19 Maí 2011, 16:09
frá olafur_
Mér finnst þeir líka ótrúlega fallegir svona orginal enda eru eiginlega allir W126 (S/SE/SEL) þannig.
Það er ástæðan fyrir að mig langaði að breyta honum eitthvað smávegis, alls ekki að mér finnst orginal ljótt en langar bara að prufa eitthvað öðruvísi á þá, hugmyndin var allur svartur, amg kit og öðruvísi grill.
Ákvað hinsvegar að skoða eitthvað meira og vita hvernig hugmyndir fólk er með.

Re: Breyta W126?

Innsent: 19 Maí 2011, 20:10
frá Björgvin
Það er einfaldlega ekkert fallegra en W126 með Wald spoilerkiti....

[img]http://img2.netcarshow.com/Wald-Mercede ... per_01.jpg[/img]

Þessi útfærsla er hreint út sagt ÆÐISLEG

Hér fyrir neðan má svo sjá hinar ýmsu breitingarútfærslur á W126 bílnum

http://www.benztuning.com/search/label/W126" onclick="window.open(this.href);return false;

[img]http://4.bp.blogspot.com/-3a3ag2KZGCA/T ... lack_1.jpg[/img]

[img]https://lh5.googleusercontent.com/-x5Dl ... _amg_3.jpg[/img]

[img]https://lh6.googleusercontent.com/-b8RA ... line_2.jpg[/img]

kveðja

Re: Breyta W126?

Innsent: 04 Jún 2011, 19:37
frá Balli...
skella 19 tommu monoblock og filmur,lækkan smá þá ertu bara helvíti góður

Re: Breyta W126?

Innsent: 24 Jún 2011, 01:17
frá Hübner
Af þessum hugmyndum hér finnst mér Panzerinn lang flottastur...en Carlsson felgurnar eru reyndar geðveikar líka