Síða 1 af 1

ML-230

Innsent: 23 Jan 2011, 15:49
frá Minuteman
Er að velta fyrir mér ML-230 98' módelið, er eitthvað sem mér ber að varast með þessa bíla, eru þeir bilanagjarnir?

Re: ML-230

Innsent: 23 Jan 2011, 21:20
frá Þröstur
Æ caramba ég held það bili allt sem bilað getur. W163 er eini bíllinn sem ég hef vitað til að hafi farið ABS dæla í. 400,000 kostar það, í þinum sporum er ódýrara að taka leigubíl útí bónus og kaupa sítrónu það er þó hægt að endurnýja hana reglulega fyrir heilbrigt gjald. Fyrir utan það að ML-230 er alveg gjörsamlega vélarvana. Það er mín skoðun eftir að gera við þessa bíla að þetta sé eitt það versta sorp sem Mercedes-Benz hafi framleitt, verst af öllu er að hafa látið þetta hafa viðkomu hjá venjulegum neytendum á leiðinni í ruslatunnuna.

Re: ML-230

Innsent: 24 Jan 2011, 09:54
frá Gamli sorrý Gráni
Ekki gleyma "ég myndi frekar fá mér eyðni" frasanum þínum, Þröstur :)
Annars hlustaði ég ekki á þessa ræðu frá Þresti mínum góðum og fékk mér ML á síðasta ári. Sá er '01 og 270 CDI, smíðaður í Austurríki. Hefur reynst afbragðsvel og allir sem keyra hann vilja helst ekki skila mér honum. Félagi minn hefur hins vegar átt 230 bíl eins og hér er spurt um, í 10 ár. Sá er keyrður 170 þúsund og hefur aldrei hitt Þröst né aðra bifvélavirkja nema til að skipta um slitfleti og olíur. Hins vegar er því ekki að neita að ML 230 verður seint talinn öflugur bíll...
Svo er nú Þröstur nú einu sinni einn reyndasti Benz skrúfari landsins þannig að skynsamir menn ættu að gefa því gaum sem hann segir. Ég reyndar hlustaði ekki á hann og er glaður maður í dag :wink:

Kv
Höskuldur St.

Re: ML-230

Innsent: 24 Jan 2011, 11:44
frá Mercedes-Benz
Þröstur skrifaði:Æ caramba ég held það bili allt sem bilað getur. W163 er eini bíllinn sem ég hef vitað til að hafi farið ABS dæla í. 400,000 kostar það, í þinum sporum er ódýrara að taka leigubíl útí bónus og kaupa sítrónu það er þó hægt að endurnýja hana reglulega fyrir heilbrigt gjald. Fyrir utan það að ML-230 er alveg gjörsamlega vélarvana. Það er mín skoðun eftir að gera við þessa bíla að þetta sé eitt það versta sorp sem Mercedes-Benz hafi framleitt, verst af öllu er að hafa látið þetta hafa viðkomu hjá venjulegum neytendum á leiðinni í ruslatunnuna.

:evil: :evil: :evil: Það er bannað að tala illa um tekjuskapandi ökutæki.. :roll: :roll:

Re: ML-230

Innsent: 24 Jan 2011, 14:44
frá HAMAR
Mercedes-Benz skrifaði:
Þröstur skrifaði:Æ caramba ég held það bili allt sem bilað getur. W163 er eini bíllinn sem ég hef vitað til að hafi farið ABS dæla í. 400,000 kostar það, í þinum sporum er ódýrara að taka leigubíl útí bónus og kaupa sítrónu það er þó hægt að endurnýja hana reglulega fyrir heilbrigt gjald. Fyrir utan það að ML-230 er alveg gjörsamlega vélarvana. Það er mín skoðun eftir að gera við þessa bíla að þetta sé eitt það versta sorp sem Mercedes-Benz hafi framleitt, verst af öllu er að hafa látið þetta hafa viðkomu hjá venjulegum neytendum á leiðinni í ruslatunnuna.

:evil: :evil: :evil: Það er bannað að tala illa um tekjuskapandi ökutæki.. :roll: :roll:
:lol: :lol: :lol: :lol: :lol: