Síða 2 af 4
Re: ML 320 verð og fleyri info
Innsent: 11 Des 2010, 20:06
frá E-cdi
ég átti E270cdi w211 og það var tóm hamingja. þannig að ml270cdi er allveg bíll sem mig langar í
en maður er ekkert endalaust rikur og ég fussa og sveija yfir bílalánum. þannig að ég er jafnvel að spá í að reyna finna mér svona bíl tjonaðan. en ekki mikið tjonaðan.
ef einhver veit um litilega tjonaðan ml þá megi þið láta mig vita í einkaskilaboðum.
Re: ML 320 verð og fleyri info
Innsent: 12 Des 2010, 12:07
frá ARG22
Ef ég væri að leita mér að ML benz þá mundi ég skoða 270 cdi þeir komu nú fyrst með þeirri vél w163 bílarnir held ég 1998 og eru 163hö og toga alveg helling og eyða ekki mjög miklu svona 10-13 innanb og 8-11 utanb (2100kg c.a). Pabbi á svona bíl 2001 og hann er mjög skemtilegur. Þeir eru ekki gallalausir og er hann t.d búinn að þurfa að láta skipta um tölvu fyrir stöðugleikakerfið (200 kall) og varahlutir eru frekar dýrir í þessa bíla. n.b það er dýrt að reka dýra bíla og ég er ekki viss um að það sé ódýrara að reka landcruiser eða álíka jeppa. það er samt ekki mikið til af þessum ml270 cdi hér á klakanum. W164 eru alltof dýrir enþá og nýir þannig að ekki er komin reynsla á þá.
Re: ML 320 verð og fleyri info
Innsent: 12 Des 2010, 20:16
frá Angelic0-
BMW X5 > Mercedes ML any time, og þá bæði boddý af báðum bílum...
Mér langar alveg sick mikið í 2008> BMW X5 35d, 284hp og 610nm !
ML320 CDI bæði eyðir meira, er verr drifaður og er óþægilegri að innan..
Re: ML 320 verð og fleyri info
Innsent: 12 Des 2010, 20:24
frá jonket
Angelic0- skrifaði:
ML320 CDI bæði eyðir meira, er verr drifaður og er óþægilegri að innan..
Hvernig er ML320 CDI verr drifaður?
Re: ML 320 verð og fleyri info
Innsent: 13 Des 2010, 01:08
frá Mercedes-Benz
Höfum eitt á hreinu..
W163 (eldri ML) er ekki til 320CDI... 320 W163 bíllinn er með bensínvél.
Einu dísilvélarnar í W163 voru 270CDI með fimm strokka línuvél og 400CDI sem var V8 mótor.
W164 (nýji ML) er hinsvegar til 280CDI og 320CDI með V6 vél (sama 3.0 lítra vélin mismikið aflúttekin) og svo 420CDI með átta strokka V vél
Re: ML 320 verð og fleyri info
Innsent: 13 Des 2010, 12:54
frá Gizmo
Angelic0- skrifaði:ML320 CDI bæði eyðir meira, er verr drifaður og er óþægilegri að innan..
og miðað við hvað ?
Re: ML 320 verð og fleyri info
Innsent: 13 Des 2010, 13:34
frá Gamli sorrý Gráni
Angelic0- skrifaði:BMW X5 > Mercedes ML any time, og þá bæði boddý af báðum bílum...
Mér langar alveg sick mikið í 2008> BMW X5 35d, 284hp og 610nm !
ML320 CDI bæði eyðir meira, er verr drifaður og er óþægilegri að innan..
X5 er eflaust svaka fínn bíll (stelpum finnst hann voða sætur..) en það er bara eitt sem er að honum: HANN ER EKKI BENZ!!!
Re: ML 320 verð og fleyri info
Innsent: 13 Des 2010, 17:30
frá E-cdi
Gamli sorrý Gráni skrifaði:Angelic0- skrifaði:BMW X5 > Mercedes ML any time, og þá bæði boddý af báðum bílum...
Mér langar alveg sick mikið í 2008> BMW X5 35d, 284hp og 610nm !
ML320 CDI bæði eyðir meira, er verr drifaður og er óþægilegri að innan..
X5 er eflaust svaka fínn bíll (stelpum finnst hann voða sætur..) en það er bara eitt sem er að honum: HANN ER EKKI BENZ!!!

heyr heyr
bmw er ekki hægt

Re: ML 320 verð og fleyri info
Innsent: 13 Des 2010, 20:22
frá Mercedes-Benz
Re: ML 320 verð og fleyri info
Innsent: 14 Des 2010, 01:09
frá Angelic0-
Annari eins þröngsýni hef ég ekki kynnst !!
Ég hélt án gríns að hérna væri ég að færa mig yfir í hóp þroskaðra manna sem að gætu virkilega séð gott í öðru en sinni tegund, það þýðir ekkert að vera svona rosalega narrow minded..
Ef að þið skoðið reviews á Xdrive þá sjáið þið að þarna eru BMW með betri drifbúnað en VW (Audi Quattro), Mercedes og jafnvel Subaru..
Fyrir utan þessi atriði þá finnst mér X5 einnig fallegri en MB... og þá á báðum ERA !