Síða 1 af 2

Þekkir einhver þennan?

Innsent: 29 Nóv 2010, 16:48
frá aroningi
Rakst á þennan á uppboði, vonandi bjargar einhver þessum!

http://bilauppbod.is/auction/view/5340-mercedes-benz" onclick="window.open(this.href);return false;

Veit einhver eitthvað um hann?

Re: Þekkir einhver þennan?

Innsent: 29 Nóv 2010, 17:00
frá JBV
Veit að þessi var lengi vel geymdur ógangfær innan dyra suður með sjó. Síðan var hann seldur norður til Akureyrar, hvar hann var geymdur lengi vel í bakgarði húss sem staðsett er á eyrinni. Þar sá ég hann síðasta sumar.

Re: Þekkir einhver þennan?

Innsent: 29 Nóv 2010, 17:11
frá hjalti.g
Hvaða mótor ætli sé í þessu, sagður 125 kw :?: :?

Re: Þekkir einhver þennan?

Innsent: 29 Nóv 2010, 17:17
frá Benni
Koma svo Gunnar Örn, taka einn Coupé í viðbót :lol:

Re: Þekkir einhver þennan?

Innsent: 29 Nóv 2010, 18:17
frá gmg
Verðugt verkefni fyrir laghentan, það eru fáir til af þessu boddíi 8)

Re: Þekkir einhver þennan?

Innsent: 29 Nóv 2010, 18:49
frá aroningi
hjalti.g skrifaði:Hvaða mótor ætli sé í þessu, sagður 125 kw :?: :?
Gæti þetta ekki verið 280 mótor?

Re: Þekkir einhver þennan?

Innsent: 29 Nóv 2010, 19:01
frá sveinn
Þetta er 250C 1972, blöndungsbíll.

Hér er mynd af honum þegar hann var í Njarðvík á sínum tíma:
[img]http://fornbilar.stjarna.is/images/w114 ... cht12a.jpg[/img]

Re: Þekkir einhver þennan?

Innsent: 29 Nóv 2010, 19:06
frá Gunnar Örn
Benni skrifaði:Koma svo Gunnar Örn, taka einn Coupé í viðbót :lol:

Búinn að setja inn boð :D

Re: Þekkir einhver þennan?

Innsent: 29 Nóv 2010, 19:45
frá BjörgvinS
Það er nú þannig með þennann fák að bróðir minn á hann og hefur átt hann síðan í lok árs 2004. Ógangfær var hann nú heldur betur ekki. Þessum bíl var ekið frá Keflavík og norður á Akureyri í kringum áramótin 2004/2005 án nokkurra einustu vandræða 8) Meira að segja topplúgan virkaði þá hehe. Svo stóð hann bara en var seinast settur í gang og keyrður fyrir sirka 2,5 árum og var þá farið með hann inní Eyjafjörð í geymslu í einhvern tíma. Í það skiptið var hann líka keyrður án vandræða.
Þannig að það er stutt síðan honum hefur verið ekið, hann hefur hinsvegar ekki verið settur í gang síðan þá. Það er allavega vitað að það er bilaður í honum kúplingsþrællinn í dag, eitthvað gizmo þarna undir mælaborðinu. Að öðru leyti er frekar erfitt að segja eitthvað til um ástandið á honum almennt þar sem það hefur ekki reynt mikið á það, en þetta er auðvitað bíll sem þarfnast uppgerðar.

Re: Þekkir einhver þennan?

Innsent: 26 Des 2010, 22:51
frá Björgvin
Finnst nú samt skrýtið að 153 þús sé undir lágmarksboði, var að tala við væntanlega núverandi eiganda fyrir ca 2 árum um að kaupa þennan bíl og var þá boðið hann á 75 þús... En það hefur kannski verið einhver fjárvöntun þá sem er ekki staðar í dag :) En flottur bíll og vonandi að hann komist í hendur einhvers sem gerir hann upp :)