Síða 1 af 2

Flytja inn bíl.

Innsent: 02 Nóv 2010, 12:39
frá UnnarK
Ég var að spá í hvað maður þarf að borga í skatt og fleira ef maður myndi kaupa bíl út í Þýskalandi og flytja hann sjálfur heim með Norrænu.

Ef þetta væri bíll á ca 5þús evrur með undir 3l vél hvað væri semi lokakostnaður ef ekkert er talið inn nema verðið á bílnum og kostnaður þegar hann væri kominn heim.

Re: Flytja inn bíl.

Innsent: 02 Nóv 2010, 13:53
frá Olbogi
UnnarK skrifaði:Ég var að spá í hvað maður þarf að borga í skatt og fleira ef maður myndi kaupa bíl út í Þýskalandi og flytja hann sjálfur heim með Norrænu.

Ef þetta væri bíll á ca 5þús evrur með undir 3l vél hvað væri semi lokakostnaður ef ekkert er talið inn nema verðið á bílnum og kostnaður þegar hann væri kominn heim.
Það eru 30% tollar + 25,5%VSK af bílum undir 2000cc
Það eru 45% tollar + 25,5%VSK af bílum yfir 2000cc
5000 evrur *155=775000

Reiknivél tollstjóra http://www.tollur.is/upload/files/calc_ ... 811%29.htm

Flutningur í Norrænu er fluttningsgjald og er tollskylt

Re: Flytja inn bíl.

Innsent: 02 Nóv 2010, 19:36
frá andrz
Eins og olbogi bendir á er alveg svona vonlaust að búa á þessu skeri

Re: Flytja inn bíl.

Innsent: 02 Nóv 2010, 21:03
frá HAMAR
Þetta yrði bíll uppá tæpar 2 milljónir :cry:

http://www.bmwkraftur.is/innflutningur/ ... mit=Reikna" onclick="window.open(this.href);return false;

edit, evrugengið er nú ekki rétt hjá BMWkrafti.

Re: Flytja inn bíl.

Innsent: 02 Nóv 2010, 21:49
frá sveinn
innflutningsverð=(verð+flutningskostnaður)*vörugjald*virðisaukaskattur
1.555.886kr=(5.000EUR*155kr+80.000kr)*1,45*1,255

Hugsa að það kosti eitthvað nálægt 80þús fyrir bíl með Norrænu...

Re: Flytja inn bíl.

Innsent: 03 Nóv 2010, 10:44
frá Olbogi
sveinn skrifaði:innflutningsverð=(verð+flutningskostnaður)*vörugjald*virðisaukaskattur
1.555.886kr=(5.000EUR*155kr+80.000kr)*1,45*1,255

Hugsa að það kosti eitthvað nálægt 80þús fyrir bíl með Norrænu...
Á svo ekki að hækka vörugjöldin af 2000cc+ í 65% núna um áramótin

Re: Flytja inn bíl.

Innsent: 03 Nóv 2010, 11:12
frá JBV
Olbogi skrifaði:
sveinn skrifaði:innflutningsverð=(verð+flutningskostnaður)*vörugjald*virðisaukaskattur
1.555.886kr=(5.000EUR*155kr+80.000kr)*1,45*1,255

Hugsa að það kosti eitthvað nálægt 80þús fyrir bíl með Norrænu...
Á svo ekki að hækka vörugjöldin af 2000cc+ í 65% núna um áramótin
VG í hnotskurn !! :roll:

Re: Flytja inn bíl.

Innsent: 03 Nóv 2010, 11:21
frá Benni
JBV skrifaði:
Olbogi skrifaði:
sveinn skrifaði:innflutningsverð=(verð+flutningskostnaður)*vörugjald*virðisaukaskattur
1.555.886kr=(5.000EUR*155kr+80.000kr)*1,45*1,255

Hugsa að það kosti eitthvað nálægt 80þús fyrir bíl með Norrænu...
Á svo ekki að hækka vörugjöldin af 2000cc+ í 65% núna um áramótin
VG í hnotskurn !! :roll:
VG = Vörugjaldaflokkurinn :roll:

Re: Flytja inn bíl.

Innsent: 04 Nóv 2010, 08:00
frá Björgvin B
Það er örugglega ekki þess virði að standa í þessu með þessa ofurtolla !

Re: Flytja inn bíl.

Innsent: 04 Nóv 2010, 08:14
frá Hlynzi
Björgvin B skrifaði:Það er örugglega ekki þess virði að standa í þessu með þessa ofurtolla !
Í flestum tilfellum eru til allt að helmingi ódýrari bílar heima.