Síða 2 af 2

Re: Gullnáma varahluta í Benz

Innsent: 21 Des 2010, 07:18
frá BaraBenz
Ég hef átt viðskipti við Sævar í Partahúsinu og syni hans þar. Ég hef ekkert nema mjög gott um þá að segja. Og hundurinn hans heilsar manni.

Ég var þar seinast í gær. Sævar notar aðstöðuna í Overhedd núna. Segir það vera hlýrra að sitja þar.

Ég nefndi Overhedd við Sævar eftir að hann var nýfluttur þangað með partasöluna og það var eins og hann vildi sem minnst vita um hana. Komst að því hér á spjallinu að það væri sonur hans sem ætti hana.

Eins og fyrr segir þá hefur Sævar reynst mér mjög vel. Ég vill alls ekki yfirfæra það sem ég hef heyrt um son hans yfir á hann.

Óþarfi að að skjóta alla hundana í sveitinni þó lús finnist á einum.

Annars finnst mér óþarfi að kalla menn fífl og bera þá þungum sökum án þess að þeir geti svarað fyrir sig.

Þar fyrir utan þá er á ábyrgð seljanda að skila inn sölutilkynningu og skipta einkanúmeri út af bíl við sölu.

Ég seldi ungum strák bíl og leyfði honum að fá óútfyllta sölutilkynningu því mamma hans átti að vera skráður eigandi v/ trygginga. Hann gleymdi að fara með hana.

Það var ekki við neinn nema mig sjálfan að sakast. Og það var á mína ábyrgð að leiðrétta það.

Re: Gullnáma varahluta í Benz

Innsent: 21 Des 2010, 08:19
frá Angelic0-
BaraBenz skrifaði:Þar fyrir utan þá er á ábyrgð seljanda að skila inn sölutilkynningu og skipta einkanúmeri út af bíl við sölu.
NEMA annað sé tekið fram í afsali eins og átti við í þessu tilviki...

þegar að ég svo bar þetta upp við hann í síma sagði hann mér að hann hefði haldið að þessi númer hefðu verið djók og að númerin af bílnum lægju inni...

það þarf ekki annað en að flétta númerunum BADONE upp í ökutækjaskrá til að sjá að svo er ekki og er þetta búið að kosta mig bæði bifreiðargjöld og tryggingar af umræddu ökutæki...

Re: Gullnáma varahluta í Benz

Innsent: 21 Des 2010, 08:47
frá BaraBenz
Angelic0- skrifaði:NEMA annað sé tekið fram í afsali eins og átti við í þessu tilviki...
Þetta er nú orðið aðeins :offtopic:
En
Umferðastofa-tilkynning skrifaði:Tilkynnandi eigendaskipta: Seljandi og kaupandi bera báðir ábyrgð á tilkynningu eigendaskipta. Aðilum er bent á að halda eftir eintaki af tilkynningunni
með því að ljósrita frumritið eða undirrita aukaeintök.
Kæmi mér á óvart ef hægt er að afsala sér ábyrgð í afsali.

Ekki nema það sé umsamið að eigendaskipti fari ekki strax fram, en eigandaskipti ber að tilkynna innan sjö daga.

Er bíllinn í notkun eða er búið að rífa hann í parta.
þegar að ég svo bar þetta upp við hann í síma sagði hann mér að hann hefði haldið að þessi númer hefðu verið djók og að númerin af bílnum lægju inni...
Það er enn bíll á skattaskýslunni minni sem var rifinn fyrir 8 árum. Partasalinn átti að sjá um afskráninguna. En ég get bara kennt sjálfum mér um. Og ég næ honum ekki út úr kerfinu. Sem betur fer var hann það gamall að ég er ekki rukkaður um bifreiðagjöld lengur.

Re: Gullnáma varahluta í Benz

Innsent: 21 Des 2010, 16:00
frá Angelic0-
BaraBenz skrifaði:Er bíllinn í notkun eða er búið að rífa hann í parta?
Hann (eða reyndar þessi Tommi vinur hans) er búinn að rífa bílinn, en ég heyrði af númerunum í umferð á öðrum bíl um daginn....

Ég er alvarlega að spá í að tilkynna ökutækið stolið !

Re: Gullnáma varahluta í Benz

Innsent: 22 Des 2010, 00:21
frá valdi
ég hef verslað tvisvar við partahúsið... og í eitt skipti seldu þeir mér ónýta skiptingu... sem þeir sögðu að væri í lagi og væri búið að prófa...

síðan keypti strákur sem ég þekki skiptingu af þeim... og hún er ónýt líka....

og já óli sem var með overhedd er byrjaður að vinna hjá partahúsinu þannig að ég versla aldrei aftur þar... ekki á meðan sá maður vinnur þar allavega :wink:

Re: Gullnáma varahluta í Benz

Innsent: 26 Jan 2011, 13:16
frá bjarni567
Sælir.
Ég þyrfti eiginlega að eiga viðskyfti við overhedd. Hef séð að spjallverjar eru ekki mjög sáttir við þá hvað ber að varast? Endilega fræðið mig ef þið viljið ekki birta það hér þá meigið þið endilega senda mér ep.

Re: Gullnáma varahluta í Benz

Innsent: 26 Jan 2011, 14:24
frá Hlynzi
bjarni567 skrifaði:Sælir.
Ég þyrfti eiginlega að eiga viðskyfti við overhedd. Hef séð að spjallverjar eru ekki mjög sáttir við þá hvað ber að varast? Endilega fræðið mig ef þið viljið ekki birta það hér þá meigið þið endilega senda mér ep.
Það var víst búið að selja það fyrirtæki, svo kannski er nýja fyrirtækið skárra.

Re: Gullnáma varahluta í Benz

Innsent: 27 Jan 2011, 11:30
frá bjarni567
Ok kanski er það ekki overhedd en það er við hliðina á partahúsinu og það er allavega Óli og Tommi þar held að þetta sé gamla overhedd bara með nýtt nafn en sömu andlitinn en er ekki viss.