Síða 1 af 2

450 SLC

Innsent: 25 Júl 2010, 12:26
frá SLC
hæ hæ,

veit einhver um SLC bíla hér á landi sem standa bara og bíða eftir að einhver nenni að gera þá upp?

Re: 450 SLC

Innsent: 28 Júl 2010, 20:28
frá Spiderman
Það var lengi vel til sölu svartur bíll ca. 75 módel, illa flæddur. Fékkst á ca. 300 þús ef ég man rétt.

Svo er til ljósblár bíll með gylltum felgum sem þarf að snýta. Sá bíll stóð á Bílahorninu árið 2007, ásett 990 þús.

Re: 450 SLC

Innsent: 29 Júl 2010, 18:44
frá SLC
sæll,

veistu hvar þessi svarti er?

ég held að ég viti um þann bláa...

Re: 450 SLC

Innsent: 29 Júl 2010, 19:22
frá Spiderman
Ekki hugmynd, sá sem átti hann heitir Ólafur Eyjólfsson og býr í Keflavík

Re: 450 SLC

Innsent: 01 Ágú 2010, 04:46
frá Gizmo
sá ljósblái stendur í vogahverfinu og hann fer ekki batnandi, er á mörkum þess að vera viðgerðarhæfur í dag eins og G bíllinn sem er að fara sömu leið í stæðinu við hliðina á honum. Það væri gaman ef einhverjum tækist að forða þessum bílum frá augljósum örlögum í höndum þess sem á þá í dag.

Einn svartann 74 reif ég sem var aldrei fullskráður hérlendis, var fluttur inn ónýtur. Sá stóð í geymslum klúbbsins þar til að ég slátraði honum.

Nokkrir 280 bílar eru til, en mjög fáir 350/450

Re: 450 SLC

Innsent: 01 Ágú 2010, 13:12
frá GUMMCO
Gizmo skrifaði:sá ljósblái stendur í vogahverfinu og hann fer ekki batnandi, er á mörkum þess að vera viðgerðarhæfur í dag eins og G bíllinn sem er að fara sömu leið í stæðinu við hliðina á honum. Það væri gaman ef einhverjum tækist að forða þessum bílum frá augljósum örlögum í höndum þess sem á þá í dag.

Einn svartann 74 reif ég sem var aldrei fullskráður hérlendis, var fluttur inn ónýtur. Sá stóð í geymslum klúbbsins þar til að ég slátraði honum.

Nokkrir 280 bílar eru til, en mjög fáir 350/450
Reyndi að kaupa þennan ljósbláa vorið 2007 minnir mig og gjaldiða var ekki minna enn einn milljón,fannst það of mikið þá,enda bíllinn ekki góður þá,verst ef fer illa fyrir honum :(

Re: 450 SLC

Innsent: 02 Ágú 2010, 00:43
frá Gizmo
ansi hræddur um að öll bretti, húdd, botn, sílsar, skottbotn, innrétting, flest ljós og svo mætti endalaust telja er ónýtt í þessum bláa bíl.

Re: 450 SLC

Innsent: 02 Ágú 2010, 10:19
frá SLC
jamm...

heyrði að sá blái ætti enn að seljast á eitthvað rugl, 6-800 þús !

vonandi verður hægt að koma vitinu fyrir núverandi eiganda fljótlega svo hræið hverfi ekki alveg ofaní grasið í vogunum.. því þetta gæti orðið flottur bíll.

Re: 450 SLC

Innsent: 01 Sep 2010, 16:01
frá toppurinn
Vitið þið hvaða bíll þetta er sem er auglýstur á bilasolur.is 280slc 1975 svartur ?

http://www.bilasolur.is/CarDetails.aspx ... &schpage=1" onclick="window.open(this.href);return false;

Re: 450 SLC

Innsent: 01 Sep 2010, 17:31
frá eyjok
Reyndi að kaupa þennan ljósbláa vorið 2007 minnir mig og gjaldiða var ekki minna enn einn milljón,fannst það of mikið þá,enda bíllinn ekki góður þá,verst ef fer illa fyrir honum :(
Er ekki til einhver lyfjakokteill til snúa manninum af þessari vitleysu?