Síða 1 af 6
Mercedes eða Zil
Innsent: 22 Maí 2010, 15:22
frá Björgvin B
bul
Re: Mercedes eða Zil
Innsent: 22 Maí 2010, 21:09
frá SveinnArnar
Þetta er að sjálfsögðu hin mesta ósvinna Comrade Björgvin - að láta sér detta aðra eins brjálsemi í hug. Þessi Mercedev (...eða hvað hann nú heitir) veit greinilega ekkert hvað hann er að tala um!
Re: Mercedes eða Zil
Innsent: 22 Maí 2010, 21:20
frá JBV
Mér finnst eiginlega alveg við hæfi að sjá rússana á Zil. Þetta eru svona rússnesk menningarverðmæti sem er vert að halda til haga.
Mercedes-Benz á aftur á móti að vera ríkjandi þjóðhöfðingjabifreið í gjörvallri Evrópu!!

Re: Mercedes eða Zil
Innsent: 22 Maí 2010, 22:02
frá Benni
JBV skrifaði:Mér finnst eiginlega alveg við hæfi að sjá rússana á Zil. Þetta eru svona rússnesk menningarverðmæti sem er vert að halda til haga.
Mercedes-Benz á aftur á móti að vera ríkjandi þjóðhöfðingjabifreið í gjörvallri Evrópu!!

Pínu sammála Jóni Birgi
Mér hefur allt fundist Zil vera skemmtilegra ljótir bílar - og klárlega mikil menningarverðmæti.
Sama gildir auðvitað um Tatra. Synd að það fyrirtæki skyldi hætta að framleiða fólksbíla

Re: Mercedes eða Zil
Innsent: 22 Maí 2010, 22:15
frá Björgvin B
Sendiráð Sovétríkjanna var með Zil sem viðhafnarbíl hér á landi en skipti svo yfir í Mercedes Benz !
Ég man eftir þessum bíl á götum Reykjavíkur fyrir margt löngu !
Re: Mercedes eða Zil
Innsent: 22 Maí 2010, 22:16
frá Þórður A.
Sko. Hugsum þetta þannig að Ísland framleiddi lúxus bíla sem hétu...Þórður.
Svo myndi forsetinn kaupa Benz... Hugsa að mörgum þætti það súrt...
Re: Mercedes eða Zil
Innsent: 23 Maí 2010, 08:37
frá Benni
Björgvin B skrifaði:Sendiráð Sovétríkjanna var með Zil sem viðhafnarbíl hér á landi en skipti svo yfir í Mercedes Benz !
Ég man eftir þessum bíl á götum Reykjavíkur fyrir margt löngu !
Kom sá bíll ekki hingað vegna leiðtogafundarins 1986?
Re: Mercedes eða Zil
Innsent: 23 Maí 2010, 10:23
frá Björgvin B
Jú einn fylgdi Mikhail Gorbachev til landsins en svo var svona bíll í sendiráðinu í kringum 1980, hann stóð lengi í Garðastrætinu og nánast ryðgaði þar niður !
Re: Mercedes eða Zil
Innsent: 23 Maí 2010, 22:47
frá Benni
Björgvin B skrifaði:Jú einn fylgdi Mikhail Gorbachev til landsins en svo var svona bíll í sendiráðinu í kringum 1980, hann stóð lengi í Garðastrætinu og nánast ryðgaði þar niður !
Ok.... vissi bara um Volgurnar þeirra, man ekkert eftir Zilnum þar nema "Gorba"

Re: Mercedes eða Zil
Innsent: 24 Maí 2010, 22:19
frá Þröstur
Þórður A. skrifaði:Sko. Hugsum þetta þannig að Ísland framleiddi lúxus bíla sem hétu...Þórður.
Svo myndi forsetinn kaupa Benz... Hugsa að mörgum þætti það súrt...
Ef Ísland framleiddi lúxusbíla sem hétu Þórður þá fengi forsetaembættið sér örugglega Toyotu.