Síða 1 af 5
hvað má w124 e220 draga mörk kg?
Innsent: 21 Mar 2010, 18:27
frá Ásgeir Yngvi
Já ég var að reyna að googla þetta en fann ekkert...
hefur einhver hugmynd um hvar ég finn uppl. um þetta?
Er aðalega að spá hvort hann höndli t.d minnstu gerð af hestakerru.
Re: hvað má w124 e220 draga mörk kg?
Innsent: 21 Mar 2010, 18:37
frá Ásgeir Yngvi
The trailer weights i personally know is that 300TE and 300TD Turbo can tow 2100kg, E300 Diesel can tow 1600kg and 230TE can tow 1900kg. Over here the max trailer weight is printed in the cars registration. Your trailer weight should allso be found in your cars driver manual so you should read the chapter on towing there. "Tongue weight" is 90-100kg on SLS cars and 75-80kg on a standard sedan.. Tongue weight is allso printed on a red label/sticker on the "rear door step" on cars with a hitch.
Re: hvað má w124 e220 draga mörk kg?
Innsent: 23 Mar 2010, 10:35
frá Logi
Ef bíllinn er skráður með krók þá á þetta að standa í skráningarskírteininu. En athugaðu það að bíllinn má ekki draga vagn sem er með skráða heildarþyngd meiri en bíllinn má draga, óháð því hversu þungur vagninn er þegar þú ert að draga hann!
Re: hvað má w124 e220 draga mörk kg?
Innsent: 23 Mar 2010, 16:41
frá Ásgeir Yngvi
Logi skrifaði:Ef bíllinn er skráður með krók þá á þetta að standa í skráningarskírteininu. En athugaðu það að bíllinn má ekki draga vagn sem er með skráða heildarþyngd meiri en bíllinn má draga, óháð því hversu þungur vagninn er þegar þú ert að draga hann!
Heyrðu nei bíllinn er ekki með kúlu eins og er.
Og ekki veit ég nú skráða heildarþyngd á þessari hestakerru sem ég mun verzla mér.
En svona minnsta gerð af hestakerru + tveir hestar ná aldrei 1900 kg, það er nokkuð ljóst. Væri samt alveg til í að fá áreiðanlegri heimildir varðandi dráttargetuna heldur en þetta útlenska spjall sem google fann handa mér. En 1900 kg er samt eitthvað í áttina trúi ég.
Re: hvað má w124 e220 draga mörk kg?
Innsent: 23 Mar 2010, 19:40
frá Louis Cyphre
Ég vona bara að hann sé beinskiptur hjá þér........
Re: hvað má w124 e220 draga mörk kg?
Innsent: 23 Mar 2010, 19:49
frá Þórður A.
Þarftu ekki meirapróf eða álíka til að draga meira en 750kg?
Re: hvað má w124 e220 draga mörk kg?
Innsent: 23 Mar 2010, 20:10
frá BaraBenz
Re: hvað má w124 e220 draga mörk kg?
Innsent: 23 Mar 2010, 21:13
frá Gizmo
Bosal gefur upp 1900 kg max á 124 bílana, ég er samt viss um að það fengist ekki skráð hérna, ég átti Volvo sem ég skráði kúlu á og það var eh mjög langt frá því sem stóð á beyslinu sem var svo skráð á hann í skírteinið, hvers vegna var erfitt að fá svar við.
Þú værir líka kominn með meiri þyngd í kerruna en bíllinn viktar sem dregur og það er ekki góð blanda.....
En já, ef þú vilt leysa eh upp í eldi og reyk í gömlum bíl, þá er án efa mjög áhrifarík leið að hengja tvö tonn aftan í hann og reyna svo að halda umferðarhraða. Ég er td með nær nýjann 150 hesta Renault Traffic og í vikunni skutlaði ég kerru með 1400kg minigröfu á um Reykjavík, sá bíll svitnaði vel og er hann nú samt gerður til að bera og draga.
Re: hvað má w124 e220 draga mörk kg?
Innsent: 23 Mar 2010, 23:06
frá Ásgeir Yngvi
Ég held að þið séuð að misskilja all verulega þyngd á lítilli hestakerru með tveimur hestum.
Það er alveg af og frá að þetta vigti tvö tonn. Meðal þyngd á hesti er 380 kg.
Þannig að ef ég ætti að giska á þetta þá ætti kerran með tveimur hrossum að vigta svipað og bíllinn. Aldrei meira allavega.
En ég er búinn að finna mér kerru.
Og já maður með venjuleg ökuréttindi má ekki aka með loadaða hestakerru Þórður.
Ég þarf alltaf að fá mér þessa dráttarkúlu á bílinn útaf tjaldvagninum. Þannig að ég bara prufa að hengja hestakerruna aftaní benzann og tvo hesta í kerrunni. Svo kem ég beint hingað og segi ykkur hvernig það gekk. Og ef á sama tíma ég óska eftir nýrri skiptingu í varahlutadálknum þá vitiði hvernig fór

Re: hvað má w124 e220 draga mörk kg?
Innsent: 23 Mar 2010, 23:24
frá Ásgeir Yngvi
[img]
http://home.tiscali.nl/hdclassics/Mb-w1 ... 116tow.jpg[/img]
...já ef maður bara ætti 450 SEL 6,9... þá værum við ekki einu sinni að velta þessu fyrir okkur
