Síða 5 af 5

Re: hvað má w124 e220 draga mörk kg?

Innsent: 29 Mar 2010, 23:09
frá Ásgeir Yngvi
JBV skrifaði:
Ásgeir Yngvi skrifaði:ein álíka....


Hvaða Borgfirsku fitubollur ollu þessari slagsíðu á þeim græna?? :shock: :lol: :lol:
haha heyrðu það eru nú bara tveir meðal menn þarna afturí, en skottið reyndar alveg troðið af drazli.

Gormarnir eru bara orðnir svo mjúkir að hann fer svona svakalega niður. Hann var nánast óökuhæfur þarna, en það slapp :mrgreen:

Re: hvað má w124 e220 draga mörk kg?

Innsent: 30 Mar 2010, 09:22
frá Reynir Ari
Ztebbsterinn skrifaði:
Reynir Ari skrifaði:
Ztebbsterinn skrifaði: Hér er hún :wink:

[img]http://myndir.5aur.net/gallery2/d/30128-3/no1_015.jpg[/img]

Þarna er kallinn að flytja vestur :)

..en að gefnu tilefni er rétt að taka fram að þessi bíll er beinskiptur.
Hvar er hleðslujafnarinn þegar maður þarf á honum að halda :D
Það er svoleiðis í þessum bíl, neminn var bara ekki rétt stilltur, svo getur líka hjálpað til að bíllinn hafi ekki verið kominn í gang þegar myndin var tekin.
Ahhhh hlaut að vera :D snilllld

Re: hvað má w124 e220 draga mörk kg?

Innsent: 30 Mar 2010, 11:50
frá Lindemann
Það sem hamlar því helst að sjálfskiptingar séu góður kostur til að draga þunga hluti er hitamyndun í skiptingunni.
Ef það er góður olíukælir við viðkomandi skiptingu, þá ætti það ekki að vera mikið vandamál. Helsti gallinn er að það er enginn hitamælir fyrir skiptinguna svo menn verða bara að fara rólega ef verið er að draga eitthvað þungt.
Hiti á mótor er ekkert vandamál þar sem maður getur bara fylgst með hitamælinum og keyrt eftir því.

Re: hvað má w124 e220 draga mörk kg?

Innsent: 30 Mar 2010, 12:27
frá Ásgeir Yngvi
Lindemann skrifaði:Það sem hamlar því helst að sjálfskiptingar séu góður kostur til að draga þunga hluti er hitamyndun í skiptingunni.
Ef það er góður olíukælir við viðkomandi skiptingu, þá ætti það ekki að vera mikið vandamál. Helsti gallinn er að það er enginn hitamælir fyrir skiptinguna svo menn verða bara að fara rólega ef verið er að draga eitthvað þungt.
Hiti á mótor er ekkert vandamál þar sem maður getur bara fylgst með hitamælinum og keyrt eftir því.
Mjög góður punktur.

Afhverju er ekki slíkur búnaður í bílum !? Eru jeppakallarnir ekkert að mixa svoleiðis í gamla ameríska dreka? Maður heyrir nefnilega oft úr svona ferðum að ssk hafi hitnað og það varð að draga bílinn heim.

Re: hvað má w124 e220 draga mörk kg?

Innsent: 30 Mar 2010, 16:16
frá Lindemann
jújú menn hafa eitthvað verið að setja þetta í jeppa

Re: hvað má w124 e220 draga mörk kg?

Innsent: 30 Mar 2010, 17:34
frá Ztebbsterinn
dei sja vú... var ekki verið að tala um þetta á einhverjum öðrum þræði?
Þar að segja hitamælir á sjálfskiptingu í Benz?

Re: hvað má w124 e220 draga mörk kg?

Innsent: 31 Mar 2010, 09:19
frá Benni
Ztebbsterinn skrifaði:dei sja vú... var ekki verið að tala um þetta á einhverjum öðrum þræði?
Þar að segja hitamælir á sjálfskiptingu í Benz?
Það passar, held að það hafi verði pæling með G-Wagen eða Unimog