Síða 1 af 8
Formula 1 2010, Hver verður meistari ???
Innsent: 10 Mar 2010, 21:59
frá gmg
Jæja þá er þetta að fara í gang og Skúmakker kominn til Mercedes, hvað segja menn ?
Ég sjálfur hef alltaf haldið með Mc-Laren, en núna er maður kominn með Mercedes lið og mun ég að sjálfsögðu halda með því, og segja gó Schumi !
( Hélt að ég myndi ALDREI halda með Skúmakker

)
Re: Formula 1 2010, Hver verður meistari ???
Innsent: 10 Mar 2010, 22:20
frá Benni
Die Silberpfeile von Mercedes-Benz
Held bara að Michael nái dollunni enn eina ferðina
Spurning hvað Nico gerir, væri gaman að sjá aftur svipaða stöðu og þegar Mika og David voru upp á sitt besta með McLaren-Mercedes á sínum tíma.
Re: Formula 1 2010, Hver verður meistari ???
Innsent: 11 Mar 2010, 19:02
frá andrz
Ég hef nú alltaf verið Schuma maður og eiginlega hætti að fylgjast með þessu þegar hann hætti. Nú er hann kominn aftur og hjá Mercedes svo það er ekki spurning hvað maður styður þetta árið

Re: Formula 1 2010, Hver verður meistari ???
Innsent: 11 Mar 2010, 20:35
frá Benzari
Hamilton tekur titilinn þetta tímabilið.
Re: Formula 1 2010, Hver verður meistari ???
Innsent: 11 Mar 2010, 22:33
frá JBV
andrz skrifaði:Ég hef nú alltaf verið Schuma maður og eiginlega hætti að fylgjast með þessu þegar hann hætti. Nú er hann kominn aftur og hjá Mercedes svo það er ekki spurning hvað maður styður þetta árið

Í meginn dráttum sammála - nema ég fór að halda með Hamilton þegar Schumi hætti. En nú er það áfram Schumi!!

Re: Formula 1 2010, Hver verður meistari ???
Innsent: 12 Mar 2010, 11:02
frá sveinn
Já þetta verða blendnar tilfinningar

...mun að sjálfsögðu hald með Mercedes-liðinu, en þetta verður eitthvað skrítið með skósmiðinn... Æi, mér finnst líka svona "comback" alltaf hálf tæpt, allt of miklar væntingar í tengslum við hann. Gæti orðið hálf neyðarlegt ef ekkert gengur upp.
Er samt mjög spenntur að sjá hvernig þetta fer um helgina !!!

Re: Formula 1 2010, Hver verður meistari ???
Innsent: 12 Mar 2010, 14:52
frá Olbogi
sveinn skrifaði:Já þetta verða blendnar tilfinningar

...mun að sjálfsögðu hald með Mercedes-liðinu, en þetta verður eitthvað skrítið með skósmiðinn... Æi, mér finnst líka svona "comback" alltaf hálf tæpt, allt of miklar væntingar í tengslum við hann. Gæti orðið hálf neyðarlegt ef ekkert gengur upp.
Er samt mjög spenntur að sjá hvernig þetta fer um helgina !!!

Ég held að ef þetta gangi eitthvað illa hjá honum þá verðum við vittni af dýrasta klessó í sögunni, sjúmminn hefur aldrei gefið neitt eftir
Re: Formula 1 2010, Hver verður meistari ???
Innsent: 12 Mar 2010, 16:13
frá Benni
Æfingarnar byrja vel, 4 bestu tímarnir eru hjá Mercedes GP & McLaren-Mercedes í Bahrein
http://www.visir.is/article/20100312/ID ... /248393789" onclick="window.open(this.href);return false;
Maður hefur nú enn taugar í McLaren Mercedes þannig að það væri bara hið bezta mál ef þeir séu nr. 2

Re: Formula 1 2010, Hver verður meistari ???
Innsent: 12 Mar 2010, 18:53
frá Ásgeir Yngvi
gmg skrifaði:Jæja þá er þetta að fara í gang og Skúmakker kominn til Mercedes, hvað segja menn ?
Ég sjálfur hef alltaf haldið með Mc-Laren, en núna er maður kominn með Mercedes lið og mun ég að sjálfsögðu halda með því, og segja gó Schumi !
( Hélt að ég myndi ALDREI halda með Skúmakker

)
eins og talað útúr mínu hjarta haha !
Re: Formula 1 2010, Hver verður meistari ???
Innsent: 12 Mar 2010, 23:49
frá gmg
Benni skrifaði:Æfingarnar byrja vel, 4 bestu tímarnir eru hjá Mercedes GP & McLaren-Mercedes í Bahrein
http://www.visir.is/article/20100312/ID ... /248393789" onclick="window.open(this.href);return false;
Maður hefur nú enn taugar í McLaren Mercedes þannig að það væri bara hið bezta mál ef þeir séu nr. 2

Núna bíður maður spenntur eftir fyrstu tímatöku !
