Síða 4 af 8

Re: Formula 1 2010, Hver verður meistari ???

Innsent: 09 Maí 2010, 13:27
frá gmg
Mér finnst þessi Formúla vera orðin frekar leiðinleg, hvað finnst ykkur ?

Re: Formula 1 2010, Hver verður meistari ???

Innsent: 09 Maí 2010, 17:26
frá Benzari
:x sprungið dekk hjá Hamilton þegar 2 hringir voru eftir.

Næst þegar útlit verður fyrir rigningu mun maður horfa á keppni, annars er þetta lítið meira spennandi en skákmót í beinni.

Gunnlaugur Rögnvaldss. hlýtur að vera að pikka inn uppkast af fréttapistli í miðri útsendingu, "pennatikkið" hljómar meira eins og það sé hamast á lyklaborði. :crash:

Re: Formula 1 2010, Hver verður meistari ???

Innsent: 10 Maí 2010, 09:30
frá gmg
Benzari skrifaði::x sprungið dekk hjá Hamilton þegar 2 hringir voru eftir.

Næst þegar útlit verður fyrir rigningu mun maður horfa á keppni, annars er þetta lítið meira spennandi en skákmót í beinni.

Gunnlaugur Rögnvaldss. hlýtur að vera að pikka inn uppkast af fréttapistli í miðri útsendingu, "pennatikkið" hljómar meira eins og það sé hamast á lyklaborði. :crash:
Virkilega pirrandi að hlusta á þetta lyklaborða pikk, er að spá í hvort að hann sé ekki bara á msn ? :haha:

Re: Formula 1 2010, Hver verður meistari ???

Innsent: 10 Maí 2010, 09:55
frá Björgvin B
Ég horfi alltaf á þetta á BBC, já Gunni ég held svi mér þá að hann sé að hamast á msn í miðri útsendinu, ekki er hann skrifa á Stjörnuna svo mikið er víst !

Re: Formula 1 2010, Hver verður meistari ???

Innsent: 16 Maí 2010, 11:53
frá gmg
Þá er Monaco að byrja, bezt að horfa 8)

Re: Formula 1 2010, Hver verður meistari ???

Innsent: 16 Maí 2010, 15:15
frá HAMAR
Ég missti af Monaco :cry:

Re: Formula 1 2010, Hver verður meistari ???

Innsent: 16 Maí 2010, 18:09
frá Björgvin B
Sá þetta ekki Gunni, hvernig var lyklaborðið var hann á msn ??

Re: Formula 1 2010, Hver verður meistari ???

Innsent: 16 Maí 2010, 18:20
frá sveinn
Mikið skelfing er þessi formúla orðin leiðinleg, ég held barasta að það hafi ekkert gerst síðustu 40 hringina, nema eitthvað óhapp í neðstu sætunum. :roll:

Þetta hefur sloppið til með Monaco hingað til, sem mér finnst annars óspennandi braut kappaksturslega, vengna þess að menn hafa verið með mismunandi herbrögð varðandi þjónustuhléin og bensínáfyllingar. En því er ekki að heilsa lengur. :(

Ég legg til að FIA banni bara framúrakstur til að jafna leikinn enn frekar, þá getur maður líka bara alveg hætt að horfa á þetta! :evil:

Re: Formula 1 2010, Hver verður meistari ???

Innsent: 16 Maí 2010, 18:40
frá Björgvin B
Stöð2sorp eyðileggur allt sem þeir koma nálægt !

Re: Formula 1 2010, Hver verður meistari ???

Innsent: 17 Maí 2010, 09:04
frá Benni
sveinn skrifaði:Mikið skelfing er þessi formúla orðin leiðinleg, ég held barasta að það hafi ekkert gerst síðustu 40 hringina, nema eitthvað óhapp í neðstu sætunum. :roll:

Þetta hefur sloppið til með Monaco hingað til, sem mér finnst annars óspennandi braut kappaksturslega, vengna þess að menn hafa verið með mismunandi herbrögð varðandi þjónustuhléin og bensínáfyllingar. En því er ekki að heilsa lengur. :(

Ég legg til að FIA banni bara framúrakstur til að jafna leikinn enn frekar, þá getur maður líka bara alveg hætt að horfa á þetta! :evil:
Sammála Sveini.

Er alveg hættur að nenna að horfa á þetta, sérstaklega eftir að þjónustuhléin voru þurrkuð út þá er eiginlega öll spenna farin úr "pakkanum" :evil: