Síða 2 af 8

Re: Formula 1 2010, Hver verður meistari ???

Innsent: 13 Mar 2010, 10:07
frá Logi
Ég hef haldið með McLaren frá því Senna var og hét, það mun ekki breytast. Hugsa að Hamilton taki þetta 8)

Re: Formula 1 2010, Hver verður meistari ???

Innsent: 13 Mar 2010, 12:20
frá Reynir Ari
andrz skrifaði:Ég hef nú alltaf verið Schuma maður og eiginlega hætti að fylgjast með þessu þegar hann hætti. Nú er hann kominn aftur og hjá Mercedes svo það er ekki spurning hvað maður styður þetta árið :)
:iagree:

Re: Formula 1 2010, Hver verður meistari ???

Innsent: 13 Mar 2010, 18:49
frá HAMAR
Ég ætla að segja að þessi ungi maður taki þetta í ár

[img]http://madtv.me.uk/f1insight/images/Vettel02.jpg[/img]

Re: Formula 1 2010, Hver verður meistari ???

Innsent: 14 Mar 2010, 17:37
frá gmg
Ekki lofar þetta góðu, engir framúrakstrar eða neitt, eina sem að gerðist var smá bilun hjá Vettel annars bara hringakstur !

Og með fullri virðingu fyrir sjónvarpsmönnum Stöð2 sport þá má tala um fleiri en Skúmakker, þeir töluðu ekki um annað en Skúmakker þetta og Skúmakker hitt :evil:

En þetta var leiðinleg keppni :roll:

Re: Formula 1 2010, Hver verður meistari ???

Innsent: 14 Mar 2010, 17:57
frá JBV
Sammála - leiðinlegri gat þessi keppni ekki verið. Það verður að leyfa bensínáfyllingar að nýju í keppninni sjálfri svo hægt sé að horfa á og hafa gaman að F1. :roll:

Hvað varða MS - þá finnst mér alveg eðlilegt að allra augu beinist að gamla meistaranum eftir svona langt hlé frá kappakstri. Það má búast við að svo verði e-ð áfram. Hann er jú goðsögn í F1 - sama hvort mönnum líkar betur eða verr. :?

Re: Formula 1 2010, Hver verður meistari ???

Innsent: 14 Mar 2010, 19:15
frá Benzari
Eftirminnilegast í þessari útsendingu var pennatikkið hjá öðrum lýsandanum, náði hann að meðaltali 37 "klikkum" á mínútu.

Re: Formula 1 2010, Hver verður meistari ???

Innsent: 14 Mar 2010, 20:13
frá Óli Kol
gmg skrifaði:Ekki lofar þetta góðu, engir framúrakstrar eða neitt, eina sem að gerðist var smá bilun hjá Vettel annars bara hringakstur !

Og með fullri virðingu fyrir sjónvarpsmönnum Stöð2 sport þá má tala um fleiri en Skúmakker, þeir töluðu ekki um annað en Skúmakker þetta og Skúmakker hitt :evil:

En þetta var leiðinleg keppni :roll:
Djöfull er ég sammála :evil: ef þetta sé það sem koma skal að formulan verði svona dauf þá nennir maður ekki að horfa á þetta lengur :( en ég ætla að gefa þessu séns, þetta var nú bara fyrsta mótið.

Re: Formula 1 2010, Hver verður meistari ???

Innsent: 14 Mar 2010, 22:51
frá gmg
Benzari skrifaði:Eftirminnilegast í þessari útsendingu var pennatikkið hjá öðrum lýsandanum, náði hann að meðaltali 37 "klikkum" á mínútu.

Já hvað var það, var hann á msn ??

Virkilega pirrandi :twisted:

Re: Formula 1 2010, Hver verður meistari ???

Innsent: 17 Mar 2010, 21:16
frá Óli Kol
gmg skrifaði:
Benzari skrifaði:Eftirminnilegast í þessari útsendingu var pennatikkið hjá öðrum lýsandanum, náði hann að meðaltali 37 "klikkum" á mínútu.

Já hvað var það, var hann á msn ??

Virkilega pirrandi :twisted:
Þeir eru nú doldið þreyttir sem að stjórna þessum þætti :( mætti alveg skipta þeim út

Re: Formula 1 2010, Hver verður meistari ???

Innsent: 17 Mar 2010, 22:52
frá Master
þetta fór full rólega af stað, vonandi verður aðeins meira aksjón í næstu keppnum. Spurning hvort það þurfi ekki að breyta reglunum aftur :( En ég hef full trú á gamla kallinum, bara spurning hvort bíllinn sé nógu öflugur til að hann geti keppt til sigurs. Ég hugsa að hann komi til með að verða betri eftir sem á líður á mótið.... bara spurning hvort það verði nógu snemma til að skapa spennu.