Síða 2 af 3
Re: Metan/Benzín breytingar á M. Benz
Innsent: 27 Jan 2010, 17:08
frá ARG22
Eftir því sem ég hef lesið á netinu þá er 1 rúmmeter metans að gefa rúmlega(svolítið meira) sömu orku og einn bensínlíter og eftir því sem ég skil þetta þá kostar 1rúmmeter metans um 98 kr samanþjappaður auðvitað. Bíllinn gengur þá eingöngu á metani þegar hann er stilltur á metanbrennslu og eingöngu á bensíni þegar hann er stilltur á bensín. Það er ss verið að reikna með því að þú eyðir c.a jafn mikið í rúmmetrum talið af metani eins og bensíni í lítrum talið. M.v það kostar það um helmingi minn að keyra um á metani(prumpi) heldur en bensíni og ekki eru lát á bensínhækkunum.
En sem komið er þá eru engin fríðindi af því skattalega séð að breyta bílnum hér á landi en ef maður flytur svona bíl inn fær maður lækkuð einhver vörugjöld, þetta er nú ekki til þess að glæða lífi í íslenskan bíla-breytingaiðnað og spurning hvort að ríkið ætti ekki að koma þessu í betri farveg því að með þessu sparast óhemjulega gjaldeyrir.
Kaupi maður nýjan Mercedes BenZ w211 s.k NGT bíl sem er í grunnin bensínbíll með 1.8 (E200 kompr NGT) bensínvél sparar maður ef ég man 1-2 milljónir á innkaupaverði en hann kostar nú líka dálítið, einhverjar 7-8 millur eða svo en án NGT kostar hann 9.2 millur. Þannig að ef þú villt kaupa nýjan bíl þá er þetta málið(náttúrulega allt grófreiknað) sá þetta þegar var stjörnukvöld í Öskju og opnaður var nýr vefur hjá þeim. Ég fékk að prufa bíl með NGT og það var einginn finnanlegur munur nema að þeir hafa bílinn um 20 hestöflum aflminni með NGT því það er enginn smurning í gasinu til þess að smurja spíssana sögðu þeir mér.
Ykkur er alveg velkomið að leiðrétta mig ef þið vitið betur, ég er bara að fletta þessu upp á netinu.
Re: Metan/bensín breytingar á M. Benz
Innsent: 27 Jan 2010, 18:55
frá AM
Hvernig er með aflið við þessa breytingu ?
Re: Metan/bensín breytingar á M. Benz
Innsent: 27 Jan 2010, 19:13
frá Olbogi
AM skrifaði:Hvernig er með aflið við þessa breytingu ?
Hef heyrt að það sé meiri snerpa og minna tog vegna þess að metan brennur hraðar en bensín
Re: Metan/bensín breytingar á M. Benz
Innsent: 27 Jan 2010, 19:24
frá ARG22
Mér skilst að lögreglubílar í einhverjum evrópulöndum séu metan-knúnir af öryggisástæðum þ.e við slys vill bensín leka niður og brenna en metan gufar frekar fljótt upp og þarf þar fyrir utan þarf meiri hita til þess að kveikja í því. Þetta sé ég sem kost en það er þó hugsanlegt að erfiðara sé að ræsa bílinn í kulda??
Re: Metan/bensín breytingar á M. Benz
Innsent: 27 Jan 2010, 20:22
frá hjalti.g
Það er Honda CRV leigubíll í breytingu núna fyrir þennan 400 þúsund kall og hann er búinn að reikna út að þetta borgi sig upp hjá honum á 6-8 mánuðum, sem passar við c.a. 40,000 kílómetra. Verður spennandi að fylgjast með hvernig það gengur

Re: Metan/bensín breytingar á M. Benz
Innsent: 27 Jan 2010, 21:14
frá ARG22
Ég þarf að leiðrétta sjálfan mig, orkugildið er víst eilítið lægra í rúmmetranum af metani en bensínlítranum en það er engu að síður töluverður sparnaður í þessu. Keyra þarf bílinn upp í 18-20°C svo að hægt sé að starta honum og keyra á þessu.
Re: Metan/bensín breytingar á M. Benz
Innsent: 28 Jan 2010, 01:22
frá Þórður A.
Hmm... Þó svo corollan mín sé ekki að eyða nema 7-8 innanbæjar væri ég alveg til í að skoða svona breytingu.
Þó kemur það alltaf upp í hugan, skyldi maður fá peninginn "til baka" þegar maður selur bílinn?
Ef ég hefði val um óbreytta corollu og svo metan corollu þá tæki ég metan rolluna, en fyrir hversu mikið meira veit ég ekki...
Hvað segið þið? Tækjuð þið metan bíl fram yfir óbreyttan bíl og hversu mikið mynduð þið þá borga fyrir metan á móti óbreyttum?
Re: Metan/bensín breytingar á M. Benz
Innsent: 28 Jan 2010, 12:23
frá ARG22
Þórður A. skrifaði:Hmm... Þó svo corollan mín sé ekki að eyða nema 7-8 innanbæjar væri ég alveg til í að skoða svona breytingu.
Þó kemur það alltaf upp í hugan, skyldi maður fá peninginn "til baka" þegar maður selur bílinn?
Ef ég hefði val um óbreytta corollu og svo metan corollu þá tæki ég metan rolluna, en fyrir hversu mikið meira veit ég ekki...
Hvað segið þið? Tækjuð þið metan bíl fram yfir óbreyttan bíl og hversu mikið mynduð þið þá borga fyrir metan á móti óbreyttum?
Þetta er góð pæling Þórður og eftir því sem maður flettir meira á netinu sé ég ekki betur en að bílar sem allavega eru svona original hafi hærra endursöluverð, en takmarkanir eru á þessu því ekki er enþá komin upp nema ein stöð sem selur metan á bíla á höfuðborgarsvæðinu, það stendur víst til bóta samt sem áður. Talað er um allt að 40% minni eldsneytiskostnað og ég er viss um að það á eftir að aukast ef ríkið heldur áfram að hækka skatta á bensín og diesel að ég tali nú ekki um hækkanir á heimsmarkaðsverðum.
Re: Metan/bensín breytingar á M. Benz
Innsent: 28 Jan 2010, 13:16
frá sveinn
Ef maður horfir raunhæft á málið, þá kemst maður þó að því að þessi beini sparnaður bifreiðaeigandans í eldsneytiskostnað yrði sennilega skammgóður vermir. Það sem ég á við er það að ef þorri landsmanna myndi skipta yfir í metan, þá yrði ríkið af svo miklum skatttekjum að ekki væri ólíklegt að metan yrði skattlagt til að vega það upp.
Hitt er annað mál að þjóðfélagið sem heild myndi áfram spara ef metan yrði alfarið framleitt hérlendis fyrir innanlandsþörf, því innflutningur á bensíni myndi minnka til samræmis. Þá yrði magn framleiðslunnar þó það mikið að ekki væri lengur um aukaafurð að ræða sem gott er að brenna og losna við. Því væri ekki lengur verið að eyða mjög mengandi afurð til þess að fá aðra minna mengandi í staðin.
Metan er hinsvegar mjög athyglisverður kostur sem framtíðarorkugjafi.
Re: Metan/bensín breytingar á M. Benz
Innsent: 28 Jan 2010, 13:45
frá ARG22
sveinn skrifaði:Ef maður horfir raunhæft á málið, þá kemst maður þó að því að þessi beini sparnaður bifreiðaeigandans í eldsneytiskostnað yrði sennilega skammgóður vermir. Það sem ég á við er það að ef þorri landsmanna myndi skipta yfir í metan, þá yrði ríkið af svo miklum skatttekjum að ekki væri ólíklegt að metan yrði skattlagt til að vega það upp.
Hitt er annað mál að þjóðfélagið sem heild myndi áfram spara ef metan yrði alfarið framleitt hérlendis fyrir innanlandsþörf, því innflutningur á bensíni myndi minnka til samræmis. Þá yrði magn framleiðslunnar þó það mikið að ekki væri lengur um aukaafurð að ræða sem gott er að brenna og losna við. Því væri ekki lengur verið að eyða mjög mengandi afurð til þess að fá aðra minna mengandi í staðin.
Metan er hinsvegar mjög athyglisverður kostur sem framtíðarorkugjafi.
Nokkuð til í þessu hjá þér Sveinn Íslenska ríkið er í kröggum núna og ekki ólíklegt að til komi nýir skattar á þennan orkugjafa gjaldeyrir sparast samt sem áður og hann er dýr fyrir þjóðarbúið í heild.
Ef við hugsum þetta heildrænt þá væri kannski verið að spara einhverja milljarða gjaldeyris sem gæti leitt til gengisstyrkingar og það er jú gott m.t.t skulda ekki bara ríkisins heldur allra sem eiga erlend lán.
En hitt er aftur annað mál að ef t.d bændur með haughús gætu sett upp söfnunarþrær í búum sínum væri til komin aukabúgrein hjá þeim og metan fyrir hugsanlega nokkur þúsund bíla (tek það fram að ég veit ekki mikið um hversu framkvæmanlegt það er). Þá væri einnig verið að brenna metani sem í dag fer beint út í loftið. Þyrfti þá ekki að vera að búa til meingandi lofttegund til þess eins að brenna henni.