Síða 1 af 2
Felguspray fyrir álfelgur
Innsent: 01 Nóv 2009, 17:55
frá sveinn
Er menn að nota einhver sérstök spray á álfelgurnar? Er þetta ekki einhver ákveðin litur?
Ég fann það berlega í morgun að dekkin sem eru á monoblock felgunum undir CEinum eru ekki að gera sig í hálku

...en bílnum fylgdu achtlock felgur með nánast ónotuðum nagladekkjum. Felgurnar eru svosem ágætar, en monoblock felgurnar sem eru undir bílnum eru bara svo flottar og nýjar að til að minnka sjokkið við að setja hinar undir, þá langar mig að sprauta þær.
Re: Felguspray fyrir álfelgur
Innsent: 01 Nóv 2009, 17:59
frá hjalti.g
Þetta er selt bæði í N1 og poulsen, veit ég, lakk sem er sérstaklega ætlað á felgur

Re: Felguspray fyrir álfelgur
Innsent: 01 Nóv 2009, 18:07
frá sveinn
hjalti.g skrifaði:Þetta er selt bæði í N1 og poulsen, veit ég, lakk sem er sérstaklega ætlað á felgur

Já ok, svoleiðis. Ég kíki í N1 á morgun, takk!

Re: Felguspray fyrir álfelgur
Innsent: 01 Nóv 2009, 22:58
frá GUMMCO
Besta felguspray sem ég hef notað er frá Concept og fæst í Málningarvörur,næst besta er frá poulsen Motip,enn liturinn frá Concept spray inu finnst mér fallegri,ljós og fínn,Sveinnef etta er ekki til í Málningarvörum ,kíktu þá bara á mig,í skúrinn.
Kv Gummi
Re: Felguspray fyrir álfelgur
Innsent: 01 Nóv 2009, 23:42
frá sveinn
Takk fyrir það Gummi, ég tekka á þessu í Malningarvörum
Eru þeir annars ekki í sundinu á milli Lágmúla og Ármúla?
Re: Felguspray fyrir álfelgur
Innsent: 01 Nóv 2009, 23:48
frá GUMMCO
sveinn skrifaði:Takk fyrir það Gummi, ég tekka á þessu í Malningarvörum
Eru þeir annars ekki í sundinu á milli Lágmúla og Ármúla?
Jú rétt beint á móti Olís bensínstöðinni,MBKí á að vera með 15 % afslátt þarna,veit ekki hvort þeir breyttu því eftir að ég hætti
Re: Felguspray fyrir álfelgur
Innsent: 02 Nóv 2009, 16:15
frá ARG22
Ég keypti í poulsen spes spray þ.e sýrugrunn með fyllingu, lit með silbermetallic og svo tveggja þátta glæruspray sem er þræl sterkt. Reyndar þá sandblés ég þær fyrst með sandjéktor fyrir háþrýstidælu en það er fljótvirk og góð leið. Þetta kostaði svona 1/3 af pólýhúðun.
Re: Felguspray fyrir álfelgur
Innsent: 03 Nóv 2009, 21:15
frá sveinn
Keypti lakkið sem Gummi benti á í Málningarvörum. Slípaði þær upp, sparslaði í smáholur, grunnaði og lakkaði. Kom mjög vel út. Ég ætla nú samt aðeins að bíða með að setja þær undir, því það er ekki lengur hálka. Ætla að reyna að vera á monoblock eins lengi og ég get...
[img]
http://fornbilar.stjarna.is/img/230ce/Achtlock1.jpg[/img]
[img]
http://fornbilar.stjarna.is/img/230ce/Achtlock2.jpg[/img]
Re: Felguspray fyrir álfelgur
Innsent: 03 Nóv 2009, 22:49
frá Halldór Björn
Vel gert og þær eru orðnar mjög flottar!
Re: Felguspray fyrir álfelgur
Innsent: 03 Nóv 2009, 22:57
frá hjalti.g
Halldór Björn skrifaði:Vel gert og þær eru orðnar mjög flottar!
