Síða 1 af 1

ML 230

Innsent: 03 Ágú 2009, 12:46
frá kolbeinsson
Sælir stjörnumenn.

Nú er svo komið að manni vantar annan bíl á heimilið. Einhvern sem rúmar barnakerru og sem kemst út fyrir malbikið í veiði.
Ég rakst á þennan núna rétt í þessu og leist ágætlega á svona í fyrstu þó að vélin m ætti vera stærri. Þekkir einhver til þessa bíls og getur miðlað upplýsingum?
Hvernig hafa þessir bílar almennt verið að reynast? Eitthvað sem ég ætti að gefa sérstakan gaum þegar ég skoða? Hvernig er svo með breytingu á svona bíl? Einhver með reynslu? Er 35" ekki svolítið stór undir þennan bíl?
Allar ábendingar vel þegnar.

Re: ML 230

Innsent: 03 Ágú 2009, 19:30
frá ARG22
Það sem ég hef heyrt er að þessir Alabama Benzar (sem ML er) séu gallagripir þangað til 2002-03 þegar þjóðverjarnir fóru til þeirra í USA og kenndu þeim að smíða þessa bíla, ég hef sjálfur ekki átt svona bíl þannig að ég sel þetta ekki dýrar en ég kaupi. Ég mundi samt halda að þessi mótor sé full lítill fyrir þennan bíl og hvað þá á 35" rétt 150Hö og 220 Nm

Re: ML 230

Innsent: 04 Ágú 2009, 12:17
frá toppurinn
Ég átti 320 1998 model og hann var bara algjör draumur. Aldrei neitt einasta vesen með bílinn, nægt afl en notaði helst til mikið bensín. Átti hann í rúmt ár og eins og ég sagði, ekket vesen og virkilega skemmtilegur bara !