Síða 1 af 5
450SE 6.9, hve margir voru til og hvar eru þeir ??
Innsent: 08 Jún 2009, 08:35
frá Gizmo
Ég hef verið að spyrja menn um 6.9 bílana, sumir segja að 4 bílar hafi verið til hérna en aðrir nefna 2 stk. Veit þetta einhver ? Ef einhver hérna getur leitað eftir framleiðslunúmerum þá voru þeir með serial sem byrjaði á 116036.
Þessi hvíti stendur á túni fyrir norðan engum til gagns og er ónýtur. Sögusagnir eru um einn bíl á suðurnesjunum og jafnvel einn fyrir vestan.
Veit einhver ? Mig langar í svona vél....
Re: 450SE 6.9, hve margir voru til og hvar eru þeir ??
Innsent: 08 Jún 2009, 16:28
frá Benni
Var ekki einhver að pósta grein um það um daginn að Árni Sam Bíókóngur og Tommi í Tommahamborgurunum hafi átt svona bíla?
Re: 450SE 6.9, hve margir voru til og hvar eru þeir ??
Innsent: 08 Jún 2009, 16:48
frá Ásgeir Yngvi
heyrðu ég hef spurt að þessu hér... þá var svarið 2 bílar, og að annar hafi verið fluttur út aftur minnir mig... og jafnvel í pörtum.
Re: 450SE 6.9, hve margir voru til og hvar eru þeir ??
Innsent: 08 Jún 2009, 17:57
frá Björgvin B
R-86 var fluttur úr landi, man vel eftir honum grár að lit.
Ö-18
http://fornbilar.stjarna.is/images/w116/w116_13b.jpg" onclick="window.open(this.href);return false;
Re: 450SE 6.9, hve margir voru til og hvar eru þeir ??
Innsent: 08 Jún 2009, 23:56
frá Benz
Ö-18 er ekki með þessari 6,9 vél.Það komu tveir með þeirri vél,þessi hvíti og svo R-86 sem var fluttur inn sundurtekinn en er núna í Sviss
Re: 450SE 6.9, hve margir voru til og hvar eru þeir ??
Innsent: 09 Jún 2009, 00:00
frá gmg
Benz skrifaði:Ö-18 er ekki með þessari 6,9 vél.Það komu tveir með þeirri vél,þessi hvíti og svo R-86 sem var fluttur inn sundurtekinn en er núna í Sviss
Þá hefur R-86 verið fluttur inn af Gísla í B&L ekki satt ?
En ég og Sveinn höfum spurt MARGA fróða Benz menn um 6.9 og það man ENGINN eftir fleiri en þessum 2 stk. !!!!
Re: 450SE 6.9, hve margir voru til og hvar eru þeir ??
Innsent: 09 Jún 2009, 00:02
frá Benz
Já,sá bíll var fluttur inn af Gísla í B&L líklegast árið 1984.Sá hann einmitt hjá B&L þegar hann var nýkominn til landsins.Hinn var upphaflega grár og var lengi í eigu Nesco á Laugarveginum
Re: 450SE 6.9, hve margir voru til og hvar eru þeir ??
Innsent: 09 Jún 2009, 01:02
frá Björgvin B
Ég sat í R 86 á sínum tíma og orkan í honum var vægast sagt gríðarleg !
Re: 450SE 6.9, hve margir voru til og hvar eru þeir ??
Innsent: 09 Jún 2009, 02:28
frá Mercedes-Benz
Benz skrifaði:Ö-18 er ekki með þessari 6,9 vél.Það komu tveir með þeirri vél,þessi hvíti og svo R-86 sem var fluttur inn sundurtekinn en er núna í Sviss
Vonandi má kanski þakka Guði fyrir það að hann sé þar en ekki hér....

Re: 450SE 6.9, hve margir voru til og hvar eru þeir ??
Innsent: 09 Jún 2009, 16:29
frá Björgvin
Vinnufélagi minn átti einu sinni einn svona 450 bíl með 6.9 lítra vélinni... sá bíll er reyndar horfinn í dag að því ég best veit en hann var gylltur á litinn.... Alveg komin 10 ár síðan ég sá hann síðast....
Kveðja