Síða 1 af 2
Þekkir eitthver til þessa W220?
Innsent: 15 Apr 2009, 20:50
frá Bragi1
Finnst eins og ég sé alltaf að rekast á þennan bíl. Þekki þetta kannski ekki nógu vel en er þetta ekki bara déskoti gott verð?
http://bilasolur.is/CarDetails.aspx?bid ... 86b56802dd" onclick="window.open(this.href);return false;
[img]
http://bilasolur.is/CarImage.aspx?s=43& ... 5945&w=600[/img]
Re: Þekkir eitthver til þessa W220?
Innsent: 15 Apr 2009, 21:07
frá HAMAR
Er hann á Audi felgum ?
Þetta er nú hinn huggulegasti bíll bara,
þekki bara ekki verðlagninguna á S-class nógu vel til að segja til um hvort verðið sé gott eða ekki,
en þetta er enginn akstur á bílnum 9000 km. á ári

Re: Þekkir eitthver til þessa W220?
Innsent: 15 Apr 2009, 21:11
frá ARG22
Er þetta verð ekki bara í samræmi við tíðarandan þ.e allt á undirverði eða miklum afslætti
Re: Þekkir eitthver til þessa W220?
Innsent: 15 Apr 2009, 21:32
frá Benni
Ætli að hann sé búinn að vera lengi á sölu hjá þeim
Nánari upplýsingar:
Nýkominn úr uppherslu hjá Ræsi
Re: Þekkir eitthver til þessa W220?
Innsent: 16 Apr 2009, 14:09
frá Sergio
Benni skrifaði:Ætli að hann sé búinn að vera lengi á sölu hjá þeim
Nánari upplýsingar:
Nýkominn úr uppherslu hjá Ræsi
Skráð á söluskrá 18.6.2008 · Síðast uppfært 8.4.2009
annars mætti alveg taka vélarþvott á hann
Re: Þekkir eitthver til þessa W220?
Innsent: 16 Apr 2009, 19:30
frá ivar
þessi upphersla hjá ræsi fór fram meðan ég vann ennþá þar, og það er orðinn góðurtími síðan.
þetta verð er ekkert brunaútsöluverð, þetta er bara raunverulega ekki meira virði en þetta, ég myndi sjálfur ekki borga þetta fyrir svona bíl. þetta er orðið 10 ára gamalt, markaðurinn í molum. og nóg framboð, ég myndi bjóða 1500 í mesta lagi. fyrir 2m myndi ég ekki sætta mig við annað en 500 bíl.
Re: Þekkir eitthver til þessa W220?
Innsent: 16 Apr 2009, 19:35
frá Gizmo
Þetta eru ábyggilega hörkubílar en ég er ekki viss um að það sé gott að halda þessu gangandi nema að maður fái happaþrennu með 100þ kr úttekt á mánuði í 10 ár frá Öskju með honum.......
Þetta er álíka flókið og meðal geimskutla

Re: Þekkir eitthver til þessa W220?
Innsent: 16 Apr 2009, 22:59
frá Hlynzi
Mér finnst þessir bílar gríðarlega smekklegir að utan, og enn betri að innan.
Veit ekki nákvæmlega með bilanatíðni, en hún er örugglega í samræmi við flækjurnar sem felast undir húddinu í þessum (hann er víst með um 150 mótora, þar af 1 vél..)
Þessi prís er þokkalegur, lítið ekinn, fyrir ári síðan var mér boðinn svona bíl S430 Long á um 4 milljónir (yfirtaka á láni) sem guð má vita hvað er hátt núna...
Re: Þekkir eitthver til þessa W220?
Innsent: 17 Apr 2009, 12:45
frá eyjok
nema að maður fái happaþrennu með 100þ kr úttekt á mánuði í 10 ár frá Öskju með honum.......
Svo má nú líka tala við þessa
http://www.dogc.is" onclick="window.open(this.href);return false;
Re: Þekkir eitthver til þessa W220?
Innsent: 18 Apr 2009, 23:02
frá Leikmaður
Veit e-r hvort þessi er farinn? Renndi við hjá Guffa í kvöld og hann var a.m.k. ekki lengur á staðnum.