Síða 1 af 2
Benz stjarnan - hvenær sést hún innan úr bílnum?
Innsent: 22 Feb 2009, 11:26
frá Master
Í minningunni sem ég hef af benzunum sem voru í fjölskyldunni okkar þá stendur eiginlega mest uppúr minningin um að horfa fram eftir veginum og þar var Benz

stjarnan alltaf eins og pólstjarna sem vísaði veginn.
Ég hef tekið eftir því að sumir benzar í dag hafa ekki þessa stjörnu fremst á húddinu.
hvers vegna er það?
Er það vegna þess að hún væri svo neðarlega að maður sæi hana ekki úr bílnum?
td ml benz?
er til einhver listi yfir þær benz týpur sem eru þannig hannaðir?
Það er að koma að því að ég endurnýji bílinn minn (sem er ekki benz) og ég er mikið að spá í að hafa næsta bíl Benz (notaðan) , og kannski finnst sumum þetta skrýtinn útgangspunktur en mér finnst þetta með

vera eitt af atriðunum sem gerir benz að benz.
Re: Benz stjarnan - hvenær sést hún innan úr bílnum?
Innsent: 22 Feb 2009, 14:10
frá JBV
Alveg sammála þér Master. Það
Á að vera sjáanleg stjarna út um framrúðuna á Benz!!

Re: Benz stjarnan - hvenær sést hún innan úr bílnum?
Innsent: 22 Feb 2009, 14:11
frá JóiVidd
já ég er sammála ykkur, stjarnan verður að sjást, annars er ekki sami fílingurinn að keyra hann! Ég prófaði einusinni benz c-klass hjá vini mínum og það var einhver snillingurinn nýbúinn að stela stjörnunni af húddinu af honum og mér fannst ég alveg eins geta verið að keyra corollu, lá við.. ekki alveg sammt, en það var ekki næstum sami benzfílingurinn

!!
Re: Benz stjarnan - hvenær sést hún innan úr bílnum?
Innsent: 22 Feb 2009, 18:52
frá zneb
Lætur þetta ekkert stoppa þig í að finna rétta benzinn, ef hann er ekki útbúinn þessum munaði þá skelliru bara stjörna á eftirá, ætti ekki að vera mikið mál í flestum tilfellum geri ég ráð fyrir.
Ég hef allavega skilið þetta stjörnuleysi þannig að sporttýpurnar hafa ekki verið með stjörnuna uppúr, sbr. sec og sl bílana og fleiri... og jepparnir greinilega líka núna, hafði ekki pælt í því áður. Þess í stað er stór stjarna í grilli, e.t.v tilvísun í racebíla fyrirtækisins, t.d. gullwing? og gefur sportlegra yfirbragð get ég ímyndað mér. Er líka yfirleitt lítil flöt stjarna ofan á húddinu sem væri þá mögulega hægt að skipta út fyrir "hefðbundna" upprétta stjörnu?
Re: Benz stjarnan - hvenær sést hún innan úr bílnum?
Innsent: 22 Feb 2009, 21:23
frá andrz
Geturu ýmindað þér hvað ML væri kjánalegur ef það væri stjarna á húddinu á honum? Það væri jafn kjánalegt og Land Cruiser með Toyota merkið sem húddskraut og Pajero með Mitsubishi merkið í hring á húddinu.
Sumt á bara ekki við.
Re: Benz stjarnan - hvenær sést hún innan úr bílnum?
Innsent: 23 Feb 2009, 09:10
frá magnuz
andrz skrifaði:Geturu ýmindað þér hvað ML væri kjánalegur ef það væri stjarna á húddinu á honum? Það væri jafn kjánalegt og Land Cruiser með Toyota merkið sem húddskraut og Pajero með Mitsubishi merkið í hring á húddinu.
Sumt á bara ekki við.
ekki gleyma einstaka nissan

Re: Benz stjarnan - hvenær sést hún innan úr bílnum?
Innsent: 24 Feb 2009, 08:23
frá Haffij
andrz skrifaði: Það væri jafn kjánalegt og Land Cruiser með Toyota merkið sem húddskraut
[img]
http://i44.photobucket.com/albums/f20/h ... emerki.jpg[/img]
Hvað meinaru? Mitt merki datt nú af einn daginn og mér leið eins og ég væri nakinn, lagaði það hið snarasta.
Re: Benz stjarnan - hvenær sést hún innan úr bílnum?
Innsent: 24 Feb 2009, 13:23
frá Röggi
Ég held alveg örugglega að þetta hafi mjög mikið með árekstraprófanir að gera, held að það sé ekki litið vel á það að hafa hlut sem getur valdið auka skaða standani uppúr fremst á bílnum...
Ef ég væri vegfarandi og myndi lenda fyrir bíl, þá myndi ég sko alls ekki vilja lenda á svona stjörnu

hljómar asnalega
Re: Benz stjarnan - hvenær sést hún innan úr bílnum?
Innsent: 24 Feb 2009, 13:56
frá ivar
stjarnan er á vír og gefur strax eftir,
ástæðan er einfaldlega sú að þetta þykir ekki kúl lengur, og mörgum sem finnst ekki hæfa yngri boddýunum að hafa einhverja járnstjörnu standandi uppúr húddinu, þegar maður var á sölu þá var algengari spurning hvort ekki væri hægt að taka stjörnuna af, heldur en hvort það væri hægt að setja stjörnu á,
persónulega finnst mér fílíngur í að hafa stjörnuna fremsta
Re: Benz stjarnan - hvenær sést hún innan úr bílnum?
Innsent: 24 Feb 2009, 20:39
frá andrz
Haffij skrifaði:andrz skrifaði: Það væri jafn kjánalegt og Land Cruiser með Toyota merkið sem húddskraut
[img]
http://i44.photobucket.com/albums/f20/h ... emerki.jpg[/img]
Hvað meinaru? Mitt merki datt nú af einn daginn og mér leið eins og ég væri nakinn, lagaði það hið snarasta.
You just proved my point!