Síða 1 af 2

TIL HAMINGJU MEÐ VEFINN!

Innsent: 22 Ágú 2003, 08:40
frá Bebecar
Mig langar að óska ykkur Benz áhugafólki innilega til hamingju með vefinn!

Ég vona að hér verði skemmtilegar umræður og minni á að samstaða með öðru þýskum eðalbílum er mikilvæg.

Enn og aftur, til hamingju með vefinn.

Innsent: 23 Ágú 2003, 11:40
frá gmg
Blessaður Bebecar, er nú ekki kominn tíma til að fá sér Benz ?

Annars finnst mér góð hugmynd hjá þer að þýsku klúbbarnir þrír hittist eitthvert kvöldið.

Re: TIL HAMINGJU MEÐ VEFINN!

Innsent: 24 Ágú 2003, 16:43
frá Mercedes-Benz
Bebecar skrifaði:Mig langar að óska ykkur Benz áhugafólki innilega til hamingju með vefinn!

Ég vona að hér verði skemmtilegar umræður og minni á að samstaða með öðru þýskum eðalbílum er mikilvæg.

Enn og aftur, til hamingju með vefinn.
Vefstjórn á Stjarna.is þakkar fyrir kveðjuna frá þeim hjá BMWkraftur.is. Við vonumst til að við getum átt samstarf í framtíðinni og jafnvel skipulagt sameginlega uppákomu í náinni framtíð.

Innsent: 24 Ágú 2003, 19:56
frá Bebecar
Já endilega! Jú auðvitað langar manni líka í Benz og Porsche! Ekki Audi samt....

Já við ættum að splæsa saman í samkomi við tækifæri.

Var engin ykkar úti á kvartmílubraut á föstudaginn að horfa á E60 AMG spyrna?

Þvílíkt tæki og ég myndu sennilega setja hann bara efst á Benz listann minn í dag... sagður 381 hestöfl en er að skila sennilega nokkuð yfir 400 hestöflum... Hann tók minnst tíu ferðir og vann þær allar auðveldlega - náði best 14.07.

Innsent: 24 Ágú 2003, 20:12
frá HHS
ég rétt kíkti þarna á fös....sá einn svartann W124 með V8 var það ekki bara þessi E60? dáldið magnað tæki

Innsent: 25 Ágú 2003, 00:10
frá Benzboy
Namm

Innsent: 25 Ágú 2003, 00:44
frá Haffi
uhhhhh þetta ætti að virka!!!!!

Innsent: 25 Ágú 2003, 10:34
frá Bebecar
Hann er bara hrikalegur þessi bíll - og hann virðist vera að taka af stað í öðrum gír miðað við ekkert spól - spurning hvort hann yrði ekki ennþá sneggri ef hann ræsti í fyrsta... ? Hvernig er það Benz menn, taka þeir ekki alltaf af stað í öðrum?

Innsent: 25 Ágú 2003, 11:28
frá Benzboy
Bebecar skrifaði:Hann er bara hrikalegur þessi bíll - og hann virðist vera að taka af stað í öðrum gír miðað við ekkert spól - spurning hvort hann yrði ekki ennþá sneggri ef hann ræsti í fyrsta... ? Hvernig er það Benz menn, taka þeir ekki alltaf af stað í öðrum?
Nei, veit ekki nákvæmlega með þennan en hvað varðar s600 t.d. þá hættu þeir þessu '95 og eftir það taka þeir af stað í 1. auk þess sem það er tiltölulega einfalt að breyta skiptingunni þannig að eldri bílarnir taki af stað í fyrsta líka.