Síða 1 af 5

W123 CE

Innsent: 21 Des 2008, 21:45
frá Sergio
Vá, ég er að verða meira og meira hrifin af þessum bílum, finnst eins og CE með svona klassiskan utlit sem mun aldrei detta ur tisku, eitthvað af þessu hér á klakanum?


[img]http://img116.imageshack.us/img116/4065/36ng7.jpg[/img]

[img]http://img241.imageshack.us/img241/6076/dsci4307zq3.jpg[/img]

Innsent: 21 Des 2008, 21:54
frá ivar
já nokkrir, þótt þeim fækki ört

Innsent: 21 Des 2008, 21:58
frá eyjok
W123 er fallegur bíll hvort sem hann er 2 eða 4 dyra.En ég er persónulega meira fyrir 4 dyra bílinn,2 dyra bíllinn hefur alltaf minnt mig á virðulegan eldri mann klæddan í rapparagalla.

Annars sá ég klesstan w123c (framtjón)í Hafnarfirði um daginn,stendur við smyrla eða arnarhraun.Gott væri ef ábyrgur aðili reyndi að eignast bílinn og laga hann.

Innsent: 21 Des 2008, 22:04
frá ivar
heyrðu eyjó, avatar myndin þín er of stór, og þá meina ég ALLTOF stór :D

Innsent: 21 Des 2008, 22:20
frá eyjok
Þú hefur sem sagt séð myndina þessar sekúndur sem hún var inni,ég áttaði mig á þessu og tók hana út.

Innsent: 21 Des 2008, 22:43
frá FatBoy
eyjok skrifaði:W123 er fallegur bíll hvort sem hann er 2 eða 4 dyra.En ég er persónulega meira fyrir 4 dyra bílinn,2 dyra bíllinn hefur alltaf minnt mig á virðulegan eldri mann klæddan í rapparagalla.

Annars sá ég klesstan w123c (framtjón)í Hafnarfirði um daginn,stendur við smyrla eða arnarhraun.Gott væri ef ábyrgur aðili reyndi að eignast bílinn og laga hann.
Hann stendur við Álfaskeið.
Virtist vera mjög góður áður en hann tjónaðist.
Synd ef hann fer í pressuna.

Innsent: 21 Des 2008, 23:56
frá Ásgeir Yngvi
Já maður þarf að fara að finna sér nokkuð heillegan w123 til að eiga áður en það er of seint.

Innsent: 22 Des 2008, 05:11
frá ivar
já ég er sammála því, þetta fer að komast á það stig að verða mjög rare

Innsent: 22 Des 2008, 09:27
frá Benni
Hmm... við Jón Birgir og Sveinn þurfum að fara að koma myndunum af W123 inn á fornbilar.stjarna.is... það voru nokkrir W123 Coupé þar á meðal sem voru orðnir ansi ljótir :(

Innsent: 22 Des 2008, 11:10
frá JBV
Já ég á slatta af myndum til af þessum eðalvögnum. Skelli þeim hérna inn í kvöld ef ég nenni.. :lol: