Síða 4 af 6

Innsent: 02 Jan 2009, 23:55
frá GUMMCO
Gætir fengið HEILAN bíl fyrir þetta partaverð :D eða var þér kannski boðið að gerast hluthafi í Öskju :?:

Innsent: 03 Jan 2009, 00:14
frá sveinn
Henzel skrifaði:Bilaði hjá mér turning rate sensor í w210 árg 98 (parta númer A 00 542 65 18 )
hringdi í öskju svarið var 570.000kr halló er ekki allt í lagi hjá fólki, smella bara einu núlli aftan á verðið á heila lagernum þá borgum við húsið á no time hehe. 8)
Fékk hlutinn frá UK á 30.000kr fullu greitt til landsins, þetta er eðlilegt verð. hringið bara og spyrjið um verðið á hlutnum ef þið trúið mér ekki.

Einar Jónsson
Já, þetta munar svolítið á verði! :shock:

Innsent: 03 Jan 2009, 10:12
frá FV
Þegar að verðið er orðið svona svakalegt á maður að eiga kosta á því
að fylgjast með viðgerðinni(í gegnum gler???), og fá að sjá meitararéttindi og
viðurkenningar frá Benz, af viðkomandi bifvélavirkja!!!!

Innsent: 03 Jan 2009, 10:35
frá Jóhann G
Henzel skrifaði:Bilaði hjá mér turning rate sensor í w210 árg 98 (parta númer A 00 542 65 18 )
hringdi í öskju svarið var 570.000kr halló er ekki allt í lagi hjá fólki, smella bara einu núlli aftan á verðið á heila lagernum þá borgum við húsið á no time hehe. 8)
Fékk hlutinn frá UK á 30.000kr fullu greitt til landsins, þetta er eðlilegt verð. hringið bara og spyrjið um verðið á hlutnum ef þið trúið mér ekki.

Einar Jónsson

Þetta er reyndar ekki alveg rétt hjá þér Einar. Þessi tiltekni skynjari kostar 313 þús isk útúr búð hjá Öskju og er það glæpsamlegt verð fyrir svona lítin hlut.
Sumir hlutir, þar á meðal þessi, eru mjög dýrir í innkaupum. Þessi hlutur kostar útúr búð í USA yfir 2400 $ og eitthvað undir 2000 € í DE svo það sér það hver maður að þetta er ekki álagning frá umboðinu sjálfu í þessum tilvikum heldur er innkaupsverðið lýginni líkast.

Sömu sögu er að segja um sama skynjara í A bíl. Það mætti halda að Daimler sé að reyna að koma verstu módelunum að götunni 8)

ATH, verið er að tala um "Original-Teile" ekki aftermarket ( þó það sé í sumum tilvika ekkert verra)

kv Jóhann

Innsent: 14 Jan 2009, 12:34
frá Sergio
30 Desember pantaði ég 2 vatnskassa hosur í W201 190E, í dag er 14 januar, og ekki bunað hafa en samband við mig, ég reyndi hringja í gær niður varahlutadeild og athuga hvað er staða á pöntun, reyndi hringja í 10 min enginn svarar, fæ samband við skiptiborð, og hun ákveður að skila skilaboð og verður haft samband við mig, 24 timum seinna það er ekki en buið að hringja í mig, hringdi áðan, og þá var þetta loksins nuna tollafgreitt og ætti vera klár á morgun

Innsent: 14 Jan 2009, 23:38
frá Hübner
þegar ég fór með bílinn minn í service check hjá Öskju, í fyrsta skipti eftir að ég fékk hann, þá voru þeir eina og hálfa viku að gaufast í honum og leita að einhverri bilun, fyrst héldu þeir að einhver súrefnisskynjari væri bilaður en svo kom í ljós að bensíndælan var víst biluð og þeir urðu auðvitað að skipta um eitthvað fleira. Ég hringdi og tékkaði á bílnum daglega, jafnvel oftar, bara til að vera viss um að verið væri að vinna í bílnum. Ég trúi varla að sérhæfðir Benz viðgerðarmenn kunni ekki betur á þetta en svo að þeir þurfi heila viku til að finna þessa bilun. Ég man nú ekki hversu margir voru að "vinna" í bílnum en þegar ég fékk reikninginn frá þessu blessaða fyrirtæki (sem ég ætla ekki að versla við oftar) þá hljóðaði hann uppá tæp 300 þúsund!!

Hér eftir ætla ég að reyna hvað ég get að sleppa öllum viðskiptum við verkstæði Öskju.

Egill Á. Hübner

Innsent: 14 Jan 2009, 23:58
frá sveinn
Stjórn klúbbsins skrifaði:3. Pirringur út í einstaklinga og/eða fyrirtæki og ágreiningur þeirra á milli er ekki vettvangur þessa spjalls. Mælst er til þess að menn leysi sín ágreiningsmál annarstaðar.
Minni á reglur spjallsins.

Innsent: 15 Jan 2009, 16:03
frá ivar
mér finnst að áhugamannaklúbbur landsins ætti akkurat að vera vettvangur til að ræða umboð, og þjónustufyrirtæki sem bjóða fram þjónustu sína við benz, því að jú akkurat hérna eru aðilar sem að skipta við þessi fyrirtæki,

það að það meigi ekki hallmæla fyrirtækjum hérna, en ekkert tekið fram um að það bannað að hæla þeim er i.m.o dáldill einstefnuloki á þeir upplýsingar sem berast hingað inn um umboðið, og flr þjónustuaðila,

Innsent: 15 Jan 2009, 16:32
frá Benni
ivar skrifaði:mér finnst að áhugamannaklúbbur landsins ætti akkurat að vera vettvangur til að ræða umboð, og þjónustufyrirtæki sem bjóða fram þjónustu sína við benz, því að jú akkurat hérna eru aðilar sem að skipta við þessi fyrirtæki,

það að það meigi ekki hallmæla fyrirtækjum hérna, en ekkert tekið fram um að það bannað að hæla þeim er i.m.o dáldill einstefnuloki á þeir upplýsingar sem berast hingað inn um umboðið, og flr þjónustuaðila,
Það er að lágmarki að menn komi fram undir nafni ef þeir eru að hallmæla fyrirtækjum.
Reyndar finnst mér það bara eðlilegast að menn komi alltaf fram undir nafni en ekki bara einhverju heiti sbr. Benni hjá mér :lol:

Innsent: 15 Jan 2009, 16:45
frá Killerboot
Benni skrifaði:

Ég er sammála báðum.

Varahluta verð í Öskju er Stjarnfræðilegt :lol: :shock: