Góðan daginn.
Ég var að lesa greinina um Öskju og það er mikið til í þessu með framkomu starfsfólksins. Ég kom þar við í endaðann Ágúst síðast liðinn og vantaði framljósaperu í Benzann, sem er E320 ´99 Avantgarde, Bi-Xenon peru. Ég hringdi viku áður en ég kom og var sagt að verðið væri um 14þúsund. Ég var mjög sáttur við það að peran hafði hækkað sáralítið frá því að ég fjárfesti í Bosch peru á 12þúsund hjá Ræsi um 20 mánuðum áður. Allt í lagi með það. Ég mætti á staðinn viku eftir að ég hringdi og þurfti að bíða í um 20-30 mínútur eftir að einhver hefði tíma til að afgreiða mig. Svo loksins kom afgreiðslumaður, kurteis og vildi allt fyrir mig gera. Fínt og flott. Mig vantar eina framljósaperu og gaf upp bílnúmerið og afgreiðslumaðurinn kom með peruna.
Verð á Bi-Xenon peru frá Bosch um 23þúsund.
Auðvitað hikstaði ég aðeins og spurði hvort þetta væri rétt verð. Afgreiðslumaðurinn játaði því. Ég sagði þá við hann að mig vantaði eina peru , það væri ekki á áætlun hjá mér að kaupa hlut í fyrirtækinu og ég benti honum á það að verð á þessari peru hefði verið 14Þúsund viku áður.
Peruna fékk ég á endanum á 17þúsund, í komin.
Ég var ánægður með að þeir skiptu um peruna fyrir mig. Það vað kannski eins gott, því ég fékk vitlausa peru hjá þeim.
Þetta er ekki í eina skiptið sem þeir hjá Öskju hafa feilað sig á varahlutum í bílinn hjá mér.
Það var farið að smita út með pinjóninum á drifköglinum. Ég fór til þeira í Öskju og bað um pinjónspakkdósina. Gaf upp bílnúmerið og allt í góðu. Þegar ég fékk 2 pakkdósir (til að eiga vara ef eitthvað klikkaði í samsetningu hjá mér) þá spurði ég afgreiðslumanninn hvort þetta væri ÖRUGGLEGA rétt pakkdós. Það var litið á mig eins og einhvern hálfvita og sagt JÁ. Allt í lagi með það. Ég fer heim og ríf gömlu dósina úr og hvað sé ég? Pakkdósirnar sem ég fékk passa EKKI. Nú voru góð ráð dýr. Ég bý í Vestmannaeyjum og eru samgöngur oft á tíðum stopular vegna veðurs. Ég hringdi í Öskju og sagði þeim að ég hefði fengið vitlausar pakkdósir og vantaði rétta pakkdós STRAX. Bíllinn inn á verkstæði og allt í volli. Þeir mega eiga það að þeir skutluðu réttu pakkdósinni út á flugvöll og kom hún seinni partinn með fluginu og var bíllinn kláraður daginn eftir.
Eins og gefur að skilja var ég ekki brosandi þegar ég var kominn með varahlutinn í hendurnar og svo passaði hann ekki. Getur það verið að viðkomandi starfsmaður hafi litið eitthvað vitlaust á myndina í tölvunni eða að sé einhver vitleysa í teikningunni. Ég spyr þá sem hafa einhverja þekkingu á þessu.
Hafiði það gott um jólin, borðið vel og mikið og akið varlega.

Jólakveðjur frá Vestmannaeyjum:lol:
Guðmundur Sigurðsson.
email:
stalstjarna@gmail.com.