Síða 1 af 1
Uppkaup leyfð með góðum skilyrðum !
Innsent: 16 Des 2008, 16:06
frá Björgvin B
Innsent: 16 Des 2008, 18:07
frá Ztebbsterinn
Þá er Öskju óheimilt við sölu á viðgerðar- og varahlutaþjónustu að láta eigendur eða umráðamenn þeirra Mercedes-Benz bifreiða sem félagið hefur sjálft flutt inn (og/eða áður Ræsir) njóta annars verðs eða betri viðskiptakjara en aðrir viðskiptavinir myndu njóta í sams konar viðskiptum," að því er segir á vef Samkeppniseftirlitsins.
Flott að þetta sé opinberað og skráð til að forðast frekari misjöfnun og eða misskilnings í framtíðinni
Einnig að þeim ber að veita Benz bifreiðum þjónustu alveg burt séð frá því hvernig þær koma til landsins (annað umboð eða einka innflutningur).

Innsent: 16 Des 2008, 19:17
frá Gizmo
Hefur einhverjum einhverntímann verið mismunað hjá Öskju eftir því hvar bíllinn var keyptur ?
Það hefði frekar átt að standa þarna að Askja væri góðfúslega beðin um að taka ekki upp þá verslunarhætti sem Ræsir reyndi að stunda fyrir um áratug+, þar sem eigendum bíla sem voru ekki fluttir inn af Ræsi var gert erfitt að fá þjónustu.
Innsent: 16 Des 2008, 20:34
frá Mercedes-Benz
Gizmo skrifaði:Hefur einhverjum einhverntímann verið mismunað hjá Öskju eftir því hvar bíllinn var keyptur ?.
Ég veit ekki til þess. Askja ellti uppi hvern einasta kúnna sem mögulegt var burtséð frá því hvaðan bílinn hans kom. Það var litið á öll viðskipti sem framlegð og tekjur.
En Ræsir mismunaði ekki bara kúnnum fyrir það hvaðan þeirra bílar voru upprunnir. Mönnum var líka stundum mismunað eftir því hvaða menntun þeir höfðu....

Innsent: 16 Des 2008, 21:21
frá gulli
Mér finnst að Samkeppnisstofnun eigi að setja slíkar reglur hjá Brimborg líka. Mér skilst að þeir séu alls ekki að standa sig í að þjónusta Ford bíla ef þeir hafa ekki flutt þá inn.
Innsent: 16 Des 2008, 21:33
frá Stinnitz
athyglisvert þetta með menntunina...