Síða 1 af 6

árekstur á grensásvegi/miklubraut

Innsent: 09 Des 2008, 13:48
frá Þórður A.
sá 1 w124 CE og 1 w210, sýndist mér, í klessu á þessum gatnamótum. 1 sjúkrabíll og 2 löggubílar...vonum að það sé í lagi með alla!

Kem með mynd af slysinu á eftir.

Leiðinlegt samt að bílarnir skyldu fara svona, kanski hægt að gera við þá, sýndist w124 ekkert svo rosalega skemdur(eða jújú, allur framendinn í rúst), en óökuhæfur samt...

Innsent: 09 Des 2008, 13:57
frá Olbogi
leiðinlegt með C124 bílinn en endilega hentu inn myndum

árekstur

Innsent: 09 Des 2008, 14:19
frá Björgvin B
Ég verð nú að segja alveg eins og er, að þetta á ekki nokkurt einasta erindi hér. "Kem með myndir hér á eftir" er þetta eðlilegt ég bara spyr.

Re: árekstur

Innsent: 09 Des 2008, 14:22
frá Þórður A.
Björgvin B skrifaði:Ég verð nú að segja alveg eins og er, að þetta á ekki nokkurt einasta erindi hér. "Kem með myndir hér á eftir" er þetta eðlilegt ég bara spyr.
Bara fyrir þig Björgvin :wink:

[img]http://farm4.static.flickr.com/3173/309 ... 3f1c_b.jpg[/img]
[img]http://farm4.static.flickr.com/3073/309 ... 84f1_b.jpg[/img]

Innsent: 09 Des 2008, 15:02
frá Olbogi
Þetta hefur verið djöfullið myndarlegur CE og Björgvin B mér finnst við alveg meiga fylgjast með því þegar Benz floti Íslands verður einum bíl fátækari. Persónulega finnst mér Þórður vera að standa sig á vaktinni og vel það.

Innsent: 09 Des 2008, 15:11
frá flatbeat
Synd, þetta var fallegur CE-bíll :(

Vona að hann verði lagaður frekar en hent, virðist ekki vera neitt stórvægilegt tjón svona frá myndunum að dæma.

Re: árekstur

Innsent: 09 Des 2008, 15:44
frá hjalti.g
Björgvin B skrifaði:Ég verð nú að segja alveg eins og er, að þetta á ekki nokkurt einasta erindi hér. "Kem með myndir hér á eftir" er þetta eðlilegt ég bara spyr.
:shock: Hvað finnst þér að þessu :?: Þetta eru bara það sem þykir sjálfsagt á öllum öðrum spjöllum sem ég hef komið nálægt.

árekstur

Innsent: 09 Des 2008, 17:08
frá Björgvin B
Ef menn hafa áhuga á því að skoða myndir af slysavettvangi þar sem fólk slasast þá verði þeim að góðu, þeir hinir sömu myndu kannski líta öðrum augum á þetta ef þeir hefðu komið að ljótum slysum.

Innsent: 09 Des 2008, 19:09
frá ivar
umræðan er um bílana, með fullri virðingu fyrir aðilunum sem eiga hlut af máli,

ofsalega var þetta fallegur CE, ég vona að hann verði lagaður

Innsent: 09 Des 2008, 19:16
frá valdi
er þetta ekki ce bíllinn sem var til sölu hérna á spjallinu fyrir stuttu ?