Síða 1 af 2

LED perur í benz hjálp og svör.

Innsent: 08 Okt 2008, 18:18
frá JoeyThunder
Sælir ég held að ég sé að pósta þessu í réttan dálk en, ég fékk mér LED perur í parkljósin í benzan minn til að hafa í stíl við Xenon ljósin en ég hafði heirt að talvan mundi fara í rugl af því og að er satt hún segir að það sé ekki parkperur í. en samt blikka perunar til að byrjameð en síðana er dautt á þeim. hvað á maður að gera í sambandi við svona ???

Innsent: 08 Okt 2008, 19:00
frá andrz
Leita sér upplýsinga hjá umboði?

Innsent: 08 Okt 2008, 19:52
frá JoeyThunder
Leita sér upplýsinga hjá umboði?
já þú ert sniðugur ekki var ég svona gáfaður :oops:

Innsent: 08 Okt 2008, 21:31
frá Hlynzi
Umboðið mun ekki endilega getað svarað þessu.

Þarft að setja mótstöður í raðtengingu við LED perurnar til þess að tölvan haldi að þær séu venjulegar perur.

Innsent: 08 Okt 2008, 21:42
frá Ásgeir Yngvi
LED perur eru?? bláar perur?

Innsent: 08 Okt 2008, 22:36
frá HAMAR
Ég fékk mér svona perur í minn W211,
blátt/hvítt ljós í staðinn fyrir gulbrúnt,
og það var sama vandamálið, bíllinn hélt alltaf að hann væri ljóslaus.
Ég reif þær úr í gær og henti þeim, hundfúll.

Innsent: 08 Okt 2008, 22:41
frá Hlynzi
Ásgeir Yngvi skrifaði:LED perur eru?? bláar perur?
Light emitting diode.
Þær geta verið allra lita, algengast eru að menn séu að setja bláu perurnar í stöðuljósin (sem er ólöglegt) og svo eru þær til hvítar.
Og í flestöllum litum fyrir utan það.

Innsent: 09 Okt 2008, 11:21
frá Sergio
LED perur eru með minni watta tölu en orginal perur, þess vegna tölva er að skynja að peran sé farinn eða blikkar,
Ég var með LED perur í minum W211, hvitar við still á xenon, eina sem þurfti tengja var mótstöðu fyrir framan perunar og allt virkaði eins og á að gera ;)

Innsent: 09 Okt 2008, 12:35
frá FV
http://www.superbrightleds.com/


Þarna er hægt að fá og sjá hvað maður þarf að gera til að
fá park og stefnuljós til að virka með LED

Innsent: 10 Okt 2008, 19:44
frá JoeyThunder
Labtec skrifaði:LED perur eru með minni watta tölu en orginal perur, þess vegna tölva er að skynja að peran sé farinn eða blikkar,
Ég var með LED perur í minum W211, hvitar við still á xenon, eina sem þurfti tengja var mótstöðu fyrir framan perunar og allt virkaði eins og á að gera ;)
hvar fæ ég svona mótstöðu?