Síða 1 af 3

ML 400 cdi

Innsent: 02 Sep 2008, 23:02
frá kolbeinsson
Komið sæl.
Fékk þá flugu í hausinn að langa allt í einu í ML400 CDI. Hvað vita menn um þessa bíla? E-ð sem ber að varast? Hvað ætli þetta sé að nota af olíu? Ausið úr viskubrunninum.

Innsent: 02 Sep 2008, 23:06
frá gmg
Mig minnir að hafa heyrt fróða bifvélavirkja í Öskju mæla gegn þessum mótor, ég man ekki afhverju ?

Núna er best að fróðari vélar menn tjái sig !

Innsent: 02 Sep 2008, 23:15
frá Benni
Hef bara heyrt að þetta sé spræk og skemmtileg vél, eyðslu er m.a. hægt að finna á http://www.Mercefreaken.com (reikna með að þetta sé um 15 á hundraði innanbæjar), en eitthvað hefur verið rætt um bilerí í þessum vélum en það getur sjálfsagt verið "mánudagseintök", maður heyrir nefnilega oftast meira um vandamál en hitt :roll:

Innsent: 03 Sep 2008, 00:03
frá SE
veit ekkert um hvort það eru vandamál með þessa vél/bíl en ég hef keyrt svona bíl og þetta er spræk og skemmtileg vél og gaman að keyra hann......en veit lítið meira :D

Innsent: 03 Sep 2008, 18:52
frá Ásgeir Yngvi
mikið hefur maður heyrt hér inni að þetta sé gallagripur þessi vél....

...spurning hvort það sé eitthvað til í því ???

Innsent: 03 Sep 2008, 19:06
frá ivar
á 3 árum sem starfsmaður ræsirs lærði ég m.a það að allt sem heitir 400cdi er alveg off.. ekki einu sinni spá í þvi, mikil orka og allt það en algjört slysabarn þessi mótor

Innsent: 03 Sep 2008, 22:14
frá kolbeinsson
Að hvaða leiti er hann ómögulegur? Hvað hefur verið að klikka?

Innsent: 04 Sep 2008, 14:45
frá ivar
held að það hafi verið heddvandamál og flr kostnaðarsamt,

svo er annar kapituli að þessi vél er gífurlega stór, flókin, og öll vinna við hana þarfnast mikillar kunnáttu viðkomandi,réttra verkfæra og flr, minnir t.d að uppgefin viftureimaskipti á G400 sé 7 tímar,

það er í kringum 80k í seldri vinnu

Innsent: 04 Sep 2008, 14:47
frá messinn
ivar skrifaði:held að það hafi verið heddvandamál og flr kostnaðarsamt,

svo er annar kapituli að þessi vél er gífurlega stór, flókin, og öll vinna við hana þarfnast mikillar kunnáttu viðkomandi,réttra verkfæra og flr, minnir t.d að uppgefin viftureimaskipti á G400 sé 7 tímar,

það er í kringum 80k í seldri vinnu
tímareim? :?

Innsent: 04 Sep 2008, 18:41
frá andrz
messinn skrifaði:
ivar skrifaði:held að það hafi verið heddvandamál og flr kostnaðarsamt,

svo er annar kapituli að þessi vél er gífurlega stór, flókin, og öll vinna við hana þarfnast mikillar kunnáttu viðkomandi,réttra verkfæra og flr, minnir t.d að uppgefin viftureimaskipti á G400 sé 7 tímar,

það er í kringum 80k í seldri vinnu
tímareim? :?
Það er væntanlega keðja í þeim eins og hefur verið í Benz frá svo gott sem örófi alda...