Síða 3 af 8
Innsent: 19 Apr 2008, 21:35
frá HAMAR
Mercedes-Benz skrifaði:Þetta kallast að vera málaður með myrkrinu....

Þessi bíll stendur sko ekki í skugganum,
hann ER skugginn

Innsent: 20 Apr 2008, 07:23
frá gardar
Er ekki einhver hér með réttu tengslin og getur flett þessum bíl upp?
Innsent: 20 Apr 2008, 22:57
frá HAMAR
gardar skrifaði:Er ekki einhver hér með réttu tengslin og getur flett þessum bíl upp?
Ef einhver getur giskað á númerið þá get ég það.
KK-?51
Innsent: 20 Apr 2008, 23:12
frá Spiderman
KKG51
Innsent: 20 Apr 2008, 23:46
frá HAMAR
Mercedes Benz CSL63 AMG '07
507 hestöfl
Nýskráður 18. apríl
Innsent: 21 Apr 2008, 03:57
frá Júlli

*sleeeeeeeef*
Tók mig alveg smá tíma að gera mér grein fyrir því að þetta væri CLS, þeir koma ekki beint svona úr verksmiðjunni... djöfull hlýtur þetta líka að hafa kostað, bara bíllinn hlýtur að vera á hvað? 15? 20?
En með vélina... veit einhver hvort þetta er sama vélin og í C63 og S63? Ef ég man rétt þá er hún 525 hp í S63 og 457 í C63, veit að C63 er NA en gæti verið supercharger eða turbo/twin-turbo í S63.
Nú neyðist ég til að fletta þessu upp...

Innsent: 21 Apr 2008, 11:05
frá Spiderman
Júlli skrifaði:
djöfull hlýtur þetta líka að hafa kostað, bara bíllinn hlýtur að vera á hvað? 15? 20?
Svo langt í frá þessi bíll kostar max 8,5-9 kúlur! CL65 AMG sem kom á götuna í síðustu viku það er græja sem kostar peninga

Sennilega dýrasti fólksbíll sem hefur verið tollafgreiddur hér á landi.
Innsent: 21 Apr 2008, 11:11
frá Reynir Ari
Þessi nýji CL er allveg fáránlega fallegur

Innsent: 21 Apr 2008, 12:16
frá Hlynzi
Spiderman skrifaði:Júlli skrifaði:
djöfull hlýtur þetta líka að hafa kostað, bara bíllinn hlýtur að vera á hvað? 15? 20?
Svo langt í frá þessi bíll kostar max 8,5-9 kúlur! CL65 AMG sem kom á götuna í síðustu viku það er græja sem kostar peninga

Sennilega dýrasti fólksbíll sem hefur verið tollafgreiddur hér á landi.
Fyrir utan Continental GT, Phantom og Bentley Flying spur ?
Innsent: 21 Apr 2008, 12:39
frá Benzari
RR Phantom var bara tímabundið hérna

Finnst það ekki telja.