Síða 1 af 5

Mótmæli!!!!

Innsent: 01 Apr 2008, 18:15
frá Hjalti
Held að það sé enginn þráður um þessi mótmæli sem eru á vegum borgarinnar núna.

En langaði bara aðeins að sjá hvað ykkur finnst um þetta eins og í dag sá ég breytta jeppa farnir að gera þetta líka einnig mótorhjól og svoleiðis tæki.

En er þetta heimskulegt eða mun olíuverðið lækka útaf þessu, samt alveg í fyrsta sinn sem ég sé mótmæli ganga svona langt vanalega koma nokkrir fyrir utan alþingishúsið kasta eggjum og ógeði voða gaman allt og svo kemur löggan og segir þetta gott og þá bara fara allir, nú byrjaði þetta á fimmtudaginn og búið er að "stífla" göturnnar í 4 daga fannst samt óvenju margir gera þetta í dag.

Innsent: 01 Apr 2008, 18:32
frá messinn
Var að enda við að koma inn úr dyrunum. Stóð útá göngubrú og horfði á 20-30 trukka keyra á 20 km/h flautandi niður reykjavíkurveginn með nokkurhundruð bílarununa á eftir þeim.

Ef þetta er það sem þarf til að lækka olíu og bensínverðið, SO BE IT

Þetta er komið útí rugl.

Innsent: 01 Apr 2008, 19:33
frá Ásgeir Yngvi
Flott að mótmæla þessu.

En hvort það skilar árangri veit ég ekki.

Hef ágætis heimildir fyrir því að það styttist í að alþingishúsið verði þakið skít :lol:

Innsent: 01 Apr 2008, 19:41
frá Stinnitz
...gera eins og Frakkar gera, vörubílspalla af úldnum kartöflum og svo er nóg af fiskiúrgangi til hér á landi.

Annars finnst mér þessi mótmæli líta út eins og eitthvað sport hjá sumum...

Innsent: 02 Apr 2008, 03:13
frá Júlli
Ég verð nú að segja að það kæmi mér á óvart ef þetta hefði einhver áhrif, en ég er annars mjög hlynntur þessu og ef þessu verður haldið áfram þá vonandi gerist eitthvað á endanum, styð þetta heilshugar, en auðvitað verður samt að láta lögreglu og slökkvilið vita til að tryggja öryggi, enda gerðu þeir það víst núna eftir að hafa verið skammaðir síðast.

Innsent: 02 Apr 2008, 08:26
frá HAMAR
Það fyndnasta er að Ísland er með eitt ódyrasta eldsneytisverð í Evrópu.

Bretland - bensín 163.7 kr. -dísel 176.5 kr.
Danmörk - bensín 171.2 kr. -dísel 170.0 kr.
Frakkland- bensín 166.7 kr. -dísel 155.0 kr.
Holland - bensín 184.8 kr. -dísel 155.0 kr
Þýskaland- bensín 173 kr. -dísel 162 kr.
Ísland ÓB - bensín 147.2 kr. -dísel 154.8 kr. :D

http://www.trafikken.dk/wimpdoc.asp?pag ... bjno=14758

Innsent: 02 Apr 2008, 09:52
frá Halldór Björn
HAMAR skrifaði:Það fyndnasta er að Ísland er með eitt ódyrasta eldsneytisverð í Evrópu.

Bretland - bensín 163.7 kr. -dísel 176.5 kr.
Danmörk - bensín 171.2 kr. -dísel 170.0 kr.
Frakkland- bensín 166.7 kr. -dísel 155.0 kr.
Holland - bensín 184.8 kr. -dísel 155.0 kr
Þýskaland- bensín 173 kr. -dísel 162 kr.
Ísland ÓB - bensín 147.2 kr. -dísel 154.8 kr. :D

http://www.trafikken.dk/wimpdoc.asp?pag ... bjno=14758

Nákvæmlega! Það sem íslendingar eiga að vera að væla yfir er matvælaverð, þar virkilega getum við vælt og höfum ástæðu fyrir.
Annað þá kostaði bensínið hjá ego 145.x kronur á sunnudagin.

Innsent: 02 Apr 2008, 10:22
frá geysir
Það er ekki eingöngu verið að mótmæla bensín/dísel verði heldur líka Vökulögum sem þykja víst alveg fáránleg.

En er fólk virkilega á móti því að það sé verið að reyna að gera eitthvað í þessu bensínverði?
Þó svo að bensín verð sé hærra út í löndum, er það þá bara þannig að við eigum að lifa við það líka?

Við ættum náttúrulega líka að mótmæla háu matvælaverði, jafnt og bensínverði.

Atli, sem styður vörubílstjóra 150% í þeirra mótmælum.

Innsent: 02 Apr 2008, 10:32
frá Halldór Björn
geysir skrifaði:Það er ekki eingöngu verið að mótmæla bensín/dísel verði heldur líka Vökulögum sem þykja víst alveg fáránleg.

En er fólk virkilega á móti því að það sé verið að reyna að gera eitthvað í þessu bensínverði?
Þó svo að bensín verð sé hærra út í löndum, er það þá bara þannig að við eigum að lifa við það líka?

Við ættum náttúrulega líka að mótmæla háu matvælaverði, jafnt og bensínverði.

Atli, sem styður vörubílstjóra 150% í þeirra mótmælum.
Ég skil vel að atvinnubílstjórar eru ósáttir við þessi heimsku lög um að þeir verði að hvílast en svo er engin staður fyrir þá að hvílast...ASNALEGT!
Ég er alls ekki á móti þessum mótmælum eða á móti því að kanski verður bensín lærra hérna sem yrði frábært.
Hinsvegar þá erum við ALLTAF í öllu að bera okkur saman við löndin i kringum okkur og því ættum við hálfpartinn að halda kjafti sambandi við þetta bensín verð og mótmæla fáranlega háu matvælaverði...sem var að hækka og mun hækka meira :)

Innsent: 02 Apr 2008, 10:57
frá Hlynzi
Halldór Björn skrifaði:

Og hækkun matvælaverðs virðist vera tilkomin að stórum hluta vegna ethanóls væðingar grænmetisætnanna, langur áróður skilar sér í hækkuðu matvælaverði þar sem ethanól er "lífrænt" eldsneyti.
Hef ekki nokkra trú á að BioFuel leysi nokkurn vanda, bara nú þegar hefur það valdið hækkun á matvælum, það er svo einnig gríðarlega orkufrekt að framleiða það og dýrt.