Síða 7 af 8
Innsent: 24 Sep 2008, 07:40
frá basten
Ég tók allavega þá ákvörðun að hætta að horfa á F1, á samt ekki von á að það komi niður á íþróttinni
En loksins þegar stefndi í skemmtilegt og spennandi mót þá þurfti FIA að eyðileggja það. Greinilegt að það MÁ bara eitt lið vinna.
Nota sunnudagana hér eftir í eitthvað meira spennandi og óútreiknanlegt eins og t.d. að leggja mig.
Innsent: 28 Sep 2008, 17:11
frá Benzari
Rosaleg keppni í Singapúr, nóg að gerast þótt erfitt sé að taka framúr.
http://mbl.is/mm/sport/formula/2008/09/ ... id_alonso/
Innsent: 28 Sep 2008, 18:35
frá JBV
Já, þetta jaðrar við að vera jafn leiðinleg braut og í Monaco. Það var einungis á einum stað sem gerlegt var að taka frammúr. En það var þó gaman að upplifa næturkappakstur, dálítið sérstakt. Þrátt fyrir rökkrið var 30° hiti!
Innsent: 28 Sep 2008, 19:57
frá sveinn
Já, þetta er allt of þröng braut; eins og kappakstur í röri! Má ekki við neinu, þá þarf öryggisbíllinn að koma út.
Þó svo að það komi McLaren vel að Ferrari-lismenn hafi komið sigalausir úr keppninni, þá er ósanngjarnt að svona árekstur geti riðlað keppninni til eins og liðsmanni Alonso tókst að gera. Maður vill ekki að úrslit mótist af árekstri, en brautin bara bíður upp á þetta. Hraðari bílar voru langtímum saman fastir fyrir aftan hægfara bíla, eins og Turulli. Var það ekki nánast eini maðurinn sem var ekið framúr? Og það var bara hægt á einum stað.
Voðaleg glamúr braut, upplýst og gæsileg, en ekki að mínu skapi frekar en Monaco.
Innsent: 02 Nóv 2008, 19:08
frá Benzari
Ótrúlegur endasprettur.

Svo jafnt að bæði Ferrari og McLaren fögnuðu í lokin.
Innsent: 02 Nóv 2008, 21:32
frá sveinn
Mér fannst nú svolítið fyndið að heyra þá Ferrrari bakkabræður í sjónvarpinu fagna heimsmeistaratitlinum of snemma. Annar þeirra missti út úr sér í æsinginum þegar hið rétta kom í ljós: “Og við forum farnir að fagna, já eða Ferrari menn voru farnir að fagna!”.

Innsent: 02 Nóv 2008, 22:09
frá gmg
sveinn skrifaði:Mér fannst nú svolítið fyndið að heyra þá Ferrrari bakkabræður í sjónvarpinu fagna heimsmeistaratitlinum of snemma. Annar þeirra missti út úr sér í æsinginum þegar hið rétta kom í ljós: “Og við forum farnir að fagna, já eða Ferrari menn voru farnir að fagna!”.

Þetta lýsti þeim vel !
Innsent: 02 Nóv 2008, 22:32
frá Alpina
Benzari skrifaði:Ótrúlegur endasprettur.

Svo jafnt að bæði Ferrari og McLaren fögnuðu í lokin.
Enda unnu BÆÐI liðin
Innsent: 02 Nóv 2008, 22:34
frá Ásgeir Yngvi
þetta var alveg ótrúlegt, ég bara átti ekki til orð þegar ég hélt að Hamilton væri búinn að klúðra þessu aftur !
Innsent: 03 Nóv 2008, 01:05
frá gmg
Var að horfa á þetta á Sky, þar voru þeir með klippu frá ITV, þeir sáu Hamilton og Vettel fara fram úr Glock í síðustu beygjunni og sögðu strax að Hamilton væri kominn með titilinn.
Þeir Gunnlaugur og Jón Ragnarsson voru of uppteknir við að fagna Massa að þeir misstu af þessu !