Aðalfundur MBKÍ 2016

#1
Aðalfundur Mercedes-Benz klúbbs Íslands (MBKÍ) verður haldinn mánudaginn 31. október kl. 19:00, að Nauthóli, Nauthólsvegi.

Dagskrá:
• Kosning fundarstjóra og fundarritara
• Skýrsla stjórnar
• Reikningar lagðir fram
• Lagabreytingar
• Kosning formanns, ritara, meðstjórnanda og varamanns
• Kosning í nefndir
• Önnur mál

Nánari upplýsingar um staðsetningu og tíma verður að finna inni á spjallsvæði félagsmanna MBKÍ

Ef þú lesandi góður ert félagsmaður í MBKÍ en hefur ekki aðgang að spjallsvæði félagsmanna í MBKÍ þá endilega sendu okkur póst á netfangið mbki@mbclub.is.

Þeir sem hafa áhuga á því að bjóða sig fram til stjórnarsetu eru beðnir um að senda tölvupóst á netfangið mbki@mbclub.is með upplýsingum um nafn og kennitölu fyrir 20.10.2016

Þeir sem hafa áhuga á því að gerast félagsmenn og taka þátt í aðalfundinum, eða bjóða sig fram til stjórnar, er bent á eftirfarandi í lögum klúbbsins:
Grein 7.4.
- Stjórnarmenn skulu vera orðnir 18 ára og hafa verið félagsmenn í a.m.k. 1 ár.
Úr grein 9.
- Félagsmaður telst því aðeins gildur á aðalfundi að hann hafi greitt félagsgjald að fullu eigi síðar en þrem vikum fyrir aðalfund ár hvert.

Stjórn leggur til að við Grein 7.1. í lögum félagsins bætist við setningin „Formaður getur ekki setið lengur en í 4 ár“.

Léttar veitingar í fundarlok.

Stjórn MBKÍ 2015-2016


Garðar Lárusson
s. 892-0084

500SE 1989
280E 1980
290GD TDI 1987
280GE 1987
cron