Sælir.
Nú er ég í miðjum klíðum við að gera upp þennan grip. Planið er að gera græju sem kemst hægt en örugglega um fjallavegi landsins.
Ég er búinn að rífa hann allan í tætlur og sandblása fyrir ryðbætur og sé að ég þarf að skipta út aftur bodypörtunum, hornin eru í henglum.
Það væri frábært að fá ráð hérna hjá þeim sem hafa gert upp svona bíla hér á landi.
Ég er kominn í samband í Höskuld bílapartasmið sem gæti tekið tíma og vil gjarnan athuga fleiri möguleika ef þeir eru. Er hægt að panta þessa bodyhluta að utan?
Einnig sé ég fram á að vanta öll gluggagúmmí ásamt bodyskrúfum á bretti, innri og ytri.
W463 / 1992 (1993) GE230 (The Legend)
#1Seinast breytt af eyjolfsson þann 03 Jún 2015, 10:28, breytt 2 sinnum alls.