Bluetooth fyrir gsm símkerfið í clk 2005

#1
Sælir,
Er með Benz clk 2005 sem er með tengi fyrir gsm síma á milli framsætanna en vantar Bluetooth tæki til að tengja við , allar tengingar fyrir símann eru til staðar.
Prófaði græju hjá Öskju í dag sem passaði við tengið og náði að finna símann en stoppaði á því að kerfið í bílnum sýndi aðeins 12 af 16 tölustöfum í pin númeri sem kerfið í bílnum biður um að sé sleggið inn í gsm símann til öryggis. (Breytileg númeraröð)
Command/útvarpið í bílnum er týpa 30 en ekki 20 eins og nefnt er í leiðbeiningum með Bluetooth tækinu og héldu sölumenn hjá Öskju að það væri vandamálið ?
Kann einhver lausnina á þessu eða þekkir þetta vandamál ?


Mercedes Benz 320 S 1997
Mercedes Benz 250 D 1986 (seldur)
Wolfswagen Fox 2006 (frúarbílinn)
Porsche 928 S4 1987 (seldur)
cron