Þráður um bílinn hjá nýjum eiganda:
http://mbclub.is/spjall/viewtopic.php?f ... 5&p=174308" onclick="window.open(this.href);return false;
Hér er að finna upplýsingar um "projectið" mitt:
Um er að ræða 1965 módelið af 220SEb Coupé.
Mér hefur alltaf fundist þetta boddí vera eitt það allra flottasta sem Benz hefur sent frá sér og langaði að eignast eitt eintak. Ekki var verra að það væru mjög fáir svona bílar hér á landi
Það þarf að gera heilann helling við þennan bíl, fékkst tiltölulega ódýrt vegna hagstæðs gengis en mun að sjálfsögðu kosta sitt að gera hann upp. Vél og kram er þó að mestu leyti í lagi og er bíllinn ökufær þó hann eigi enn dálítið í vandræðum með að fara í gang ("kaldræsibúnaður" er bilaður).
Innréttingin er hins vegar illa farinn og þarf að gera hana alla upp (setja nýtt leður á sæti, skipta um teppi, pússa við o.fl.) sem ég vissi af áður en ég keypti hann.
Ég hef lítið getað gert við bílinn vegna plássleysis, bílskúrinn minn reyndist nefnilega vera frímerki eftir að Benzinn kom inn í hann, var nokkuð stærri en ég hélt
Hér eru nokkrar myndir sem teknar voru vorið 2006 þegar ég tók bílinn út "til þess að hreyfa hann aðeins".
Þegar vélin er orðin heit þá gengur hún eins og klukka og sjálfskiptingin svínvirkar
[img]http://memimage.cardomain.com/member_im ... 1_full.jpg[/img]
[img]http://memimage.cardomain.com/member_im ... 2_full.jpg[/img]
[img]http://memimage.cardomain.com/member_im ... 3_full.jpg[/img]
[img]http://memimage.cardomain.com/member_im ... 5_full.jpg[/img]
[img]http://memimage.cardomain.com/member_im ... 4_full.jpg[/img]
Þetta er spennandi verkefni, en bæði tímafrekt og kostnaðarsamt, og þess vegna er þessi bíll er ekki væntanlegur á götuna á næstunni.
Tæknleg lýsing:
Gerð: 220SEb/C / W111 /3
Vél:
2195 ccm línusexa
88 kW / 120 PS hestöfl
Þyngd:
1450 kg
Hröðun 0-100 km/h:
14 sek. (ekki fljótur upp en e.t.v. gott árið 1965
Hámarkshraði:
171 km
Nánari upplýsingar um þessa gerð er m.a. að finna á:
http://www.w111.net/" onclick="window.open(this.href);return false; og
http://www.heckflosse.nl/" onclick="window.open(this.href);return false;