LEIÐBEININGAR VARÐANDI NÝSKRÁNINGU Á MBCLUB.IS/SPJALL
Á eftirfarandi slóð er hægt að skrá sig inn á spjallþráð Mercedes-Benz klúbbs Íslands (MBKÍ):
ucp.php?mode=register" onclick="window.open(this.href);return false;
- Ath. við biðjumst velvirðingar á mögulegum stafsetningar- og málfræðivillum í íslenska skráningarforminu. Það verður lagfært um leið og uppfærsla verður tilbúin frá þýðendum kerfisins.
Ef þú færð ekki aðgang og færð t.d. villuboðin:
Please note that you will need to enter a valid e-mail address before your account is activated. You will receive an e-mail at the address you provide that contains an account activation link.
þá ert þú annaðhvort með rangt netfang skráð hjá þér eða það er ekki íslenskt (með endinguna .is ) en erlendum netföngum (t.d. @hotmail.com, @gmail.com) er sjálfkrafa hafnað. Það þýðir þó ekki að þú getir ekki skráð þig með erlendu netfangi því að það er líka hægt að senda tölvupóst á netfangið mbki hjá mbclub.is með ósk um skráningu á notandanafni á erlent netfang og við munum opna fyrir það sérstaklega (sjá nánar form fyrir skráningu og leiðbeiningar í næsta innleggi hér fyrir neðan).
Ástæðan fyrir þessari sjálfvirku höfnun er eftirfarandi:
Við höfum verið að fá mjög marga erlendar skráningar hér inn á spjallið og eru þessir notendur að skrá sig með það eitt fyrir augum að hakka sig inn eða auglýsa klámsíður og annað. Að þessu sögðu, þá samþykkjum við ekki aðra notendur en þá sem augljóslega koma frá Íslandi (eru með virk íslensk netföng, þ.e. með endinguna .is ) nema þess sé óskað sérstaklega í tölvupósti til Vefstjórnar MBKÍ.
AÐGANGUR AÐ MBCLUB.IS/SPJALL
#1-----------------------------------------------------
Stjórn Mercedes-Benz klúbbs Íslands
Netfang: mbki @ mbclub.is
Stjórn Mercedes-Benz klúbbs Íslands
Netfang: mbki @ mbclub.is