Nýtt lén mbclub.is í staðinn fyrir stjarna.is

#1
Mercedes-Benz klúbbur Íslands (MBKÍ) hefur tekið í notkun nýtt lén fyrir starfsemi sína og er það http://www.mbclub.is" onclick="window.open(this.href);return false;.

Ástæðan fyrir því að stjórn MBKÍ ákvað að breyta um lén er sú að við viljum tengja síðuna betur Mercedes-Benz nafninu (MB í MBClub) sem og að lénið sé svipað og sumir systurklúbba okkar nota erlendis.

Til stóð að taka þetta lén í notkun í þessum mánuði og átti að tilkynna það sérstaklega. Hins vegar komu upp vandamál í gær (21/11/2012) með vefinn okkar á stjarna.is, og spjallþráðinn stjarna.is/spjall, var ákveðið að skella mbclub.is strax í loftið enda var sá vefur að mestu leyti tilbúinn.

Vænta má einhverja breytinga á vefnum og spjallinu á næstu mánuðum.


-----------------------------------------------------
Stjórn Mercedes-Benz klúbbs Íslands
Netfang: mbki @ mbclub.is
cron