Breytt afsláttakjör hjá Öskju

#1
Ágætu félagsmenn,

okkur hefur borist eftirfarandi tilkynning frá Öskju:
Askja skrifaði: Við endurskoðun afsláttarflokka hérna í Öskju var tekin sú ákvörðun að hækka afslátt til félaga í Mercedes-Benz klúbbi Íslands.

Afslátturinn er eins hér fer á eftir:

Mercedes-Benz varahlutir:

Bremsudiskar og bremsuklossar: 20% afsláttur
Síur: 20% afsláttur
Þurrkublöð: 20% afsláttur
Allir aðrir Benz varahlutir: 15% afsláttur

KIA varahlutir:
Bremsudiskar og bremsuklossar: 20% afsláttur
Kúplingsdiskar,pressur og legur: 20% afsláttur
Síur: 20% afsláttur
Tímareimar,tímareimarstrekkjarar og viðhaldshjól: 20% afsláttur
Þurrkublöð: 20% afsláttur
Allir aðrir KIA varahlutir: 15% afsláttur

Að sjálfsögðu þarf að framvísa gildu félagsskírteini til njóta þessara kjara.
Hér er um að ræða aukin afslátt á sumum varahlutum fyrir Mercedes-Benz bifreiðar.

Þá fá félagsmenn í MBKÍ nú einnig afslátt af varahlutum fyrir KIA bifreiðar sem við höfum ekki notið áður. Þess má einnig geta að sumir varahlutir fyrir KIA geta einnig verið nothæfir Hyundai bíla þar sem sami eigandi er að Hyundai & KIA og margt sameiginlegt í þessum bílum.


-----------------------------------------------------
Stjórn Mercedes-Benz klúbbs Íslands
Netfang: mbki @ mbclub.is
cron