Hátt bensínverð er að kyrkja þjóðfélagið

Bensnver-mars-2012_Small

Hátt bensínverð

Fréttatilkynning frá FÍB og bílaklúbbum á Íslandi

FÍB og fulltrúar frá bílaklúbbunum BMWkrafti, Íslandrover, Krúser, Live2cruize og Mercedes-Benz klúbbi Íslands (MBKÍ) komu nýlega saman til fundar til að ræða þróun orkuverðs.
Á fundinum var eftirfarandi ályktun samþykkt.
  • Félögin skora á ríkið að lækka álögur sínar á eldsneyti.
  • Venjuleg launafjölskylda þarf 260 þúsund krónur í aukalegar tekjur til að mæta auknum eldsneytiskostnaði miðað við óbreytta notkun.
  • Neikvæðustu áhrifin eru á atvinnulífið á landsbyggðinni.
 
Félögin vara stjórnvöld alvarlega við þeim kyrkingaráhrifum sem sífelld hækkun eldsneytisverðs hefur á allt þjóðfélagið. Með hækkun eldsneytis á heimsmarkaði og stöðugt hærri álögum ríkisins stefnir bensínlítrinn hraðbyri í 300 kr.
Miklar eldsneytishækkanir frá 2009 hafa dregið úr umferð um allt land. Afleiðingin er samdráttur í viðskiptum, fækkun innlendra ferðamanna og lægra þjónustustig. Fyrir marga er það orðið lúxus að bregða sér bæjarleið.
Á árunum frá 1997 til 2009 var samanlögð álagning olíufélaga ásamt skattheimtu ríkisins um 140 kr. á lítra að jafnaði, uppreiknað til verðlags í dag. Nú er þessi tala nálægt 160 kr. og aukningin felst alfarið í aukinni skattheimtu. Við bætist gríðarleg hækkun á heimsmarkaði, sem hækkar heildarverð eldsneytis. Fyrir 10 árum kostaði bensínlítrinn tæpar 30 kr. á heimsmarkaði, en nú kostar hann 94 kr. Á árunum 1997 til 2009 kostaði lítrinn af bensíni að jafnaði 178 kr. uppreiknað til verðlags í dag, en nú kostar hann um 255 kr. Um fjórðungur af þessari hækkun er aukin skattheimta ríkisins.
Venjuleg launafjölskylda þarf að hafa 260 þúsund krónur í aukalegar tekjur á ári til að mæta auknum eldsneytisútgjöldum miðað við óbreytta notkun. Fyrir langflesta er eina ráðið að draga verulega úr samgöngum og nota heimilisbílinn aðeins í það nauðsynlegasta.
Ljóst er að samdráttur í samgöngum hefur afar neikvæð marföldunaráhrif, fyrst og fremst utan höfuðborgarsvæðisins. Ávinningur ríkisins af bensíntekjum fer minnkandi með minni umferð, þrátt fyrir aukna skattheimtu, en fyrst og fremst tapar ríkissjóður á minnkandi umsvifum í atvinnulífinu.
Bílafélögin skora á ríkisvaldið að draga úr álögum sínum á eldsneyti til að mæta þessari ógnvænlegu þróun. Lágmark er að ríkið taki ekki til sín meiri tekjur en það hefur að jafnaði fengið í gegnum árin.
Á eftirfarandi vefslóðum er finna umræður um þetta:
Spjallþráður MBKÍ:  http://www.stjarna.is/spjall/viewtopic.php?f=1&t=20064